157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:27]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og það er sannarlega ástæða til að þakka sömuleiðis fyrir skjót viðbrögð. En varðandi markmiðin þá ætla ég bara að ítreka að þetta eru sömu markmiðin og lagt var upp með í þessu upphaflega kerfi sem hæstv. ráðherra er sannarlega að afnema með þessum nýju lögum. Því langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í árangursmælingar. Nú sýndu svör fyrrverandi forsætisráðherra til mín hér í þinginu að enginn mælanlegur árangur var af gamla jafnlaunavottunarkerfinu sem nú stendur til að afnema. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í það hvort til standi að framkvæma slíkar árangursmælingar.