jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu þessa máls í dag. Ég veit að við erum sammála um mikilvægi launajafnréttis heilt yfir. Maður þekkir það sem stjórnandi en líka sem kona hvernig það er oft með ungar konur, þær eru á leiðinni í fæðingarorlof, að hugsa um barneignir, nýkomnar úr fæðingarorlofi og það er alltaf erfitt einhvern veginn að biðja um launahækkun og þess vegna hafa ungar konur oft dregist aftur og mikilvægt að veita þetta aðhald sem löggjöfinni er ætlað að gera.
Mig langar til að spyrja út í breytingarnar sérstaklega og biðja ráðherra um að draga fram hvað hún sér sem sérstaka áhættu. Hæstv. ráðherra talar um þrjú ár. Velta starfsmanna í dag er mjög hröð. Hefur það áhrif? Þetta var íþyngjandi kerfi í samhengi við vottunarstofurnar en það gerði það líka að verkum að rýni var mjög mikil. (Forseti hringir.) Hverjar eru áhætturnar sem hæstv. ráðherra telur að þurfi að fylgjast sérstaklega með?