jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Ég spyr kannski aftur um áhætturnar samt við þessa breytingu, hvort ráðherra telji þær vera til staðar. Sömuleiðis langar mig til að fara yfir eftirlitshlutann. Hérna er verið að fela Jafnréttisstofu gríðarlega mikilvægt hlutverk. Er Jafnréttisstofa í stakk búin til að sinna því hlutverki og þessari breytingu? Er hún fjármögnuð sérstaklega til að geta sinnt henni þannig að við sjáum að það sé alvara með að styðja við jöfn laun á vinnumarkaði?
Í annan stað eru fjárfestingar í tækni og innviðum gamalt slagorð hjá stjórnvöldum. Er búið að fjármagna mælaborð eða þá tækniinnviði sem á að ráðast í og hvenær eiga þeir að vera tilbúnir þannig að hægt sé að passa upp á að það sé gagnsæi hér? Ég tek undir meginmarkmið þessa frumvarps um að reyna að útfæra þetta á skynsamlegri máta fyrir atvinnulífið en við viljum líka að passa upp á það að við séum ekki að gefa neinn afslátt af þeim mikilvæga þætti sem jafnrétti er.