jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegi forseti. Það er ótrúleg rörsýn á jafnréttismálin að líta svo á að aðgerðir eins og jafnlaunavottun hafi ekki haft áhrif á þankagang í atvinnulífinu, hafi ekki mótað hugmyndir manna um hvernig eigi að nálgast þennan málaflokk. Kynbundinn launamunur er fyrir hendi á Íslandi. Við þekkjum það öll hversu mikil umræða var um þetta mál á sínum tíma, að við töluðum um þetta innan lands og við töluðum um þetta erlendis. Erlendis erum við mjög stolt af þeim árangri sem við höfum náð í jafnréttismálum á Íslandi. Flestir flokkar eru það. Allir flokkar ættu að vera meðvitaðir um að þetta er ein þeirra aðgerða. Hún hefur sannarlega skilað árangri. Ég er ekkert feimin við að viðurkenna það eða tala um það að vitaskuld hlusta ég eftir gagnrýni atvinnulífsins og er hér að mæta henni. En markmiðin um launajafnrétti, einhver innsýn í það hvaða áhrif barneignir t.d. hafa á konur frekar en karlmenn — við gleymum því ekki.