jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvað hv. þingmaður á við þegar hann talar um: Hvort eru það aðgerðir eða verðleikar kvenna? Ef við búum í samfélagi þar sem konum eru greidd lægri laun, felst þá í setningu þingmannsins að verðleikar kvenna séu minni en karla á vinnumarkaði? Að menn verði að gera það upp við sig. Er það spurningin að þegar konur mælast með lægri laun hafi það með verðleika þeirra að gera? Er þingmaðurinn að segja það? Varla. Ég vona ekki. Að ég verði að gera það upp við mig — öll ræðan fjallaði um þetta. Við erum að ná fram einhverju eðlilegu jafnvægi milli tveggja lögmætra sjónarmiða. Þetta er svo eintóna nálgun. Við erum með jafnréttismarkmið og við erum með markmið um að vilja draga úr kostnaði fyrirtækja. Ég lít svo á að hér séum við að ná fram tveimur markmiðum. Það er stundum hægt.