157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:41]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þessi sjónarmið sem hún er hér að rekja. Ég tel mig hafa gert það sömuleiðis í framsöguræðunni. Kjarnaatriðin í gagnrýninni hafa verið: Þyngslin í kerfinu, flækjustigið í kerfinu, kostnaðurinn í kerfinu. Þannig að öll vinnan miðast út frá því að hægt sé að ná fram sömu markmiðum um launajafnrétti á vinnumarkaði með ákveðnu eftirliti af hálfu stjórnvalda, ég er ekki feimin við að tala um það, sem þó verður skiljanlegra, ódýrara og skilvirkara. Það er ákveðinn kostnaður við að setja upp þetta kerfi hjá Jafnréttisstofu. En síðan er kerfið talið það einfalt, vegna þess að það er rafrænt, að það eigi ekki að hafa í för með sér mikinn aukakostnað eftir að því hefur verið komið á fót. Og eins og ég nefndi er það þegar fullfjármagnað. En þegar við erum að tala um fjármuni held ég að við verðum að horfa til þess fyrst og fremst að það er líka sparnaður fyrir hið opinbera,(Forseti hringir.) fyrir allar þær stofnanir ríkisins sem hætta nú að undirgangast jafnlaunavottun í skilningi laganna sem nú eru í gildi.