157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna.

297. mál
[11:56]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsögu sína um þetta lagafrumvarp og þá umræðu sem hefur farið hér fram, sem er ágæt. Með þessu frumvarpi sem hér er til umræðu er lagt til að einfalda og styrkja framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna með því að breyta núverandi kerfi jafnlaunavottunar í skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Markmiðið er óbreytt; að tryggja launajafnrétti og sporna gegn mismunun á grundvelli kyns. Frumvarpið felur í sér að fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa skili á þriggja ára fresti gögnum til Jafnréttisstofu sem sýna fram á að launakerfi þeirra byggist á málefnalegum kynhlutlausum viðmiðum. Gögnin skulu fela í sér starfaflokkun, launagreiningu og, þegar við á, tímasettri úrbótaáætlun. Niðurstöður skulu kynntar starfsfólki og gerðar aðgengilegar. Jafnréttisstofa mun hafa eftirlit með skýrslugjöfinni og halda skrá yfir fyrirtæki sem uppfylla kröfur laganna. Ráðherra skal láta meta árangurinn reglulega við rannsókn á launamun kynjanna í samstarfi við Hagstofu Íslands. Með þessari breytingu er komið til móts við gagnrýni um kostnað og flækjustig núverandi kerfis án þess að hvikað sé frá markmiðum laganna. Skylda til gagnsæis og eftirfylgni er áfram til staðar en ferlið verður einfaldara, hagkvæmara og skilvirkara.

Frú forseti. Frumvarp þetta er mikilvægt innlegg í umræðu um launajafnrétti og ég fagna því að lagt er til einfaldara kerfi en verið hefur við lýði undanfarin ár, en eins og fram hefur komið hefur forsvarsfólk fyrirtækja og stofnana kvartað undan flækjustigi og kostnaði, þrátt fyrir að það sé nokkuð augljóst að árangur hafi náðst með þessu kerfi sem er við lýði þó að það hafi verið heldur flókið að nota það.

Mig langar að nefna það hér að sums staðar í samfélaginu, og einnig hér á Alþingi, hefur verið umræða um að fæðingarorlof, sem nú er með þeim hætti að báðir foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til orlofs með ákveðinni heimild til að miðla hluta annars foreldris til hins, ætti að vera með þeim hætti að foreldrar ráði því alfarið sjálfir hvort þeirra taki orlof. Ég hef sagt það áður úr þessum ræðustól að ég skilji það sjónarmið að það geti hentað foreldrum að ákveða hvernig ráðstöfun fæðingarorlofsins er, en bendi á að það kerfi sem nú er við lýði hefur reynst vel og færir feðrum sjálfstæðan og mikilvægan rétt til að njóta samvista við börn sín á fyrstu mánuðum í lífi þess. Það er líka augljóst í mínum huga að þessi leið stuðlar að nauðsynlegu jafnrétti kynjanna með sama hætti og það frumvarp sem hér er til umræðu.