nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Ég er mjög stolt af þessu frumvarpi. Í lok mars á síðasta ári skipaði ég starfshóp og lagði fyrir hópinn að yfirfara lögin og framkvæmd þeirra. Honum var falið að leggja til breytingar í samræmi við þá yfirferð og taka til skoðunar hvort og þá hvernig væri hægt að nýta rafræna vöktun í þessum málaflokki. Hópnum var jafnframt falið að skoða sams konar löggjöf á Norðurlöndunum. Það frumvarp sem hér er nú fram komið var unnið á grundvelli þeirrar vinnu.
Það er veruleiki málsins að nálgunarbann virkar einfaldlega ekki nægilega vel. Það virkar ekki fyrir þolendur með þeim hætti sem við viljum. Við heyrum um dæmi þar sem er verið að brjóta gegn nálgunarbanni, jafnvel síendurtekið, með tilheyrandi ótta, óöryggi og hræðslu fyrir þolendur. Þetta hefur staðið yfir í sorglegustu dæmunum jafnvel árum saman. Þetta er skelfileg staðreynd og þessu vil ég breyta. Allir sem þekkja þennan málaflokk vita að við verðum að fá sterkari úrræði og meiri og kraftmeiri aðgerðir gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti því það eru ekki mannréttindi að fá óáreitt að ofsækja fólk eða áreita.
Virðulegi forseti. Það er jákvætt til þess að hugsa að löggjafinn hefur reynt að nálgast þetta verkefni og haft til þess metnað. Nálgunarbann var fyrst kynnt með lögum árið 2000 og sérstök löggjöf tók síðan gildi árið 2009. Á árinu 2011 tóku svo gildi núgildandi lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Þá voru gerðar mikilvægar breytingar á hegningarlögum 2016 og árið 2021 voru innleidd sérstök ákvæði gegn ofbeldi í nánum samböndum og gegn ofsóknum, áreitni og umsáturseinelti. Reynslan hefur hins vegar sýnt okkur að þessi úrræði virka ekki nægilega vel, þau ná ekki markmiðum sínum að fullu.
Markmið þessa frumvarps er að auka enn frekar vernd þolenda þeirra sem verða fyrir umsáturseinelti og verða fyrir heimilisofbeldi. Í stuttu máli er með frumvarpinu lagt til að nú verði sett í lög ákvæði sem heimilar lögreglu að taka ákvörðun um að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði samhliða ákvörðun um nálgunarbann eða brottvísun af heimili. Rafrænt eftirlit er kannski það sem við í daglegu tali köllum einfaldlega ökklaband. Í núgildandi íslenskum rétti er þessi heimild ekki til staðar í dag. Þessi breyting byggir á sambærilegum ákvæðum í norskum og dönskum rétti, aðlöguð að íslensku sakamálaréttarfari.
Forseti. Á undanförnum árum hefur fjöldi tilkynntra ofbeldismála aukist hér á landi. Þetta sjáum við í gögnum og skýrslum frá ríkislögreglustjóra. Tilkynningar til lögreglu um alvarlegar líkamsárásir og heimilisofbeldi eru fleiri. Lögreglan á landsvísu fékk tæplega 900 tilkynningar um heimilisofbeldi á fyrstu níu mánuðum ársins 2025, sem er um 7% hækkun frá sama tímabili árið 2024. Ef horft er á þessa mynd voru gerendur tæplega 800 talsins á þessu tímabili, 779 samanborið við 715 árið á undan, sem er um 9% aukning. Um 74% gerenda voru karlmenn og 26% konur, 20% gerenda voru börn og 32% þolenda voru börn. Tilkynningar um alvarlegt ofbeldi eru líka fleiri, þær voru 105 árið 2025 samanborið við 79 á árinu á undan, sem er líka töluverð aukning.
Þegar við horfum á þau úrræði sem til eru í dag eru þau í grunninn tvenns konar. Það er nálgunarbann í fyrsta lagi og svo brottvísun af heimili í öðru lagi. Oft er verið að beita hvoru tveggja, þetta er nýtt samhliða. Framkvæmd laga um nálgunarbann og brottvísun hefur almennt verið með þeim hætti að dómstólar hafa gert kröfu um að ef gerandi hefur ekki áður gerst sekur um brot gegn nálgunarbanni þá séu fyrst notuð vægari úrræði samkvæmt lögunum sem hefur falið í sér að lögregla geri samkomulag við geranda um að hann undirriti yfirlýsingu, þegar hann er yfirheyrður, sem felur efnislega í sér það sama og nálgunarbann eða brottvísun af heimili án þess þó að formleg ákvörðun hafi verið tekin um slíkt. Það eru uppi vísbendingar um að það hafi reynst erfitt að sanna brot gerenda gegn nálgunarbanni og jafnframt hafa afleiðingar þess að brjóta gegn nálgunarbanni oft aðeins verið skilorðsbundnar ef mál fara á annað borð fyrir dómstóla.
Ég er þeirrar skoðunar að dómar fyrir brot gegn nálgunarbanni eigi að vera þyngri. Þannig náum við varnaðaráhrifum umfram. Við heyrum dæmi þess að þolendur hafi ítrekað orðið fyrir hótunum eða frekara ofbeldi af hálfu geranda, jafnvel eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að gerandinn sæti nálgunarbanni. Þetta frumvarp er, eins og ég segi, svar við því en núverandi úrræði tryggja ekki næga vernd fyrir þolendur. Breytingar á lögum eru nauðsynlegar til að bregðast við þessum veruleika.
Í þessu samhengi er ástæða til að nefna að fjöldi beiðna um nálgunarbann eða brottvísun af heimili hefur verið frekar lítill miðað við fjölda tilvika af tilkynntu heimilisofbeldi. Lögreglunni bárust 95 beiðnir um nálgunarbann eða brottvísun tengdum heimilisofbeldismálum í fyrra, 95 beiðnir um nálgunarbann en tilkynningar um heimilisofbeldi voru um 1.200, þannig að við sjáum að þessar tölur kallast mjög hraustlega á hvað þetta varðar. Ég kann ekki skýringuna á því en það getur verið vísbending um að það sé ekki traust af hálfu þolenda til þessara úrræða og þar af leiðandi sé ekki óskað eftir þeim.
Nú ætla ég að gera grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Í þeim tilgangi að auka vernd þolenda er með frumvarpinu lagt til að innleidd verði í lög ákvæði sem heimila lögreglu að taka ákvörðun um að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði. Þá erum við einfaldlega að tala um að manni sem sætir nálgunarbanni verði gert að hafa þennan búnað á sér svo að það sé hægt að fylgjast með því að hann fari að þessari ákvörðun og það hafi líka um leið afleiðingar geri hann það ekki, bæði með tilliti til öryggis þolenda og með tilliti til þess að hægt sé að saksækja hann fyrir það brot.
Til grundvallar ákvörðun um nálgunarbann þarf að liggja fyrir rökstuddur grunur um refsivert brot eða raskað hafi verið friði þolanda eða hætta sé á að viðkomandi muni fremja refsivert brot gagnvart þolanda eða raska með öðrum hætti friði hans. Aðeins eitt þessara skilyrða þarf að vera uppfyllt og er því gagnlegt að skoða í því samhengi hvað það þýðir að raska friði þolanda. Þetta er ekki nákvæmlega skilgreint í lögum í tengslum við beitingu nálgunarbanns enda kannski óþarflega flókið að fara að telja það upp með tæmandi hætti í lagasetningu. En orðin sem koma fram í ákvæðinu þar sem segir, með leyfi forseta, „eða á annan hátt“ í ákvæðinu eiga að tryggja að aðrar aðferðir sem beitt er og geta raskað friði þolanda falli þarna undir. Í því samhengi er líka ástæða til að nefna þann veruleika sem við sjáum hér á Íslandi og í heiminum öllum um brot á netinu þar sem er verið að áreita eða elta einhvern í gegnum miðla á netinu. Það getur auðvitað líka verið um svona óbeina háttsemi að ræða þar sem gerandi hefur ekki samband við þolandann með beinum hætti en er t.d. að stofna ítrekað notendaaðgang í nafni þolanda á netinu og deila þar gögnum eða upplýsingum til annarra í nafni þolanda. Löggjafinn er í þessu samhengi með í huga tækniþróun og breytingar á samskiptaháttum og samfélagsgerð.
Ákvörðun um brottvísun af heimili er auðvitað langtum stærri en ákvörðun um nálgunarbann. Þar þarf að vera rökstuddur grunur um tiltekin refsiverð brot eða hættu á þeim gagnvart þolanda. Til þess að rafrænu eftirliti verði beitt ofan á þessu úrræði þá þurfa samkvæmt frumvarpinu tvö skilyrði að vera uppfyllt. Annars vegar er gerð sú krafa að grunur sé um að gerandi muni brjóta gegn ákvörðun um nálgunarbann eða ákvörðun um brottvísun af heimili og hins vegar að rafrænt eftirlit teljist nauðsynlegt til að tryggja að gerandi fari að ákvörðun sem tekin hefur verið. Bæði skilyrðin þurfa að vera uppfyllt.
Samkvæmt frumvarpinu er við mat á því hvort skilyrði fyrir rafrænu eftirliti séu uppfyllt talið rétt að byggja á heildarmati eða viðurkenndu áhættumati lögreglu þar sem m.a. er litið til ástæðna fyrir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Þar er t.d. litið til þess hvort stigvaxandi hætta sé á hótunum, áreitni eða ofbeldi gagnvart þolanda og svo önnur atriði sem geta gefið til kynna að gerandi muni ekki virða ákvörðun um nálgunarbann eða brottvísun af heimili.
Frumvarpið kveður líka á um skyldu geranda um að veita nauðsynlega aðstoð og fara eftir fyrirmælum lögreglu um rafrænt eftirlit og það þarf alltaf að meta hvort viðkomandi teljist hæfur til að sæta þessu eftirliti. Eðli málsins samkvæmt getur auðvitað komið til þess að lögreglan meti geranda ekki hæfan til að fylgja fyrirmælum um rafrænt eftirlit og þá verður það til þess að því verði ekki beitt þrátt fyrir að skilyrði séu uppfyllt. Þá kemur auðvitað til skoðunar, þegar ekki er hægt að beita þessu úrræði, að það þurfi að fara í önnur úrræði, t.d. að kanna hvort skilyrði séu fyrir gæsluvarðhaldi.
Í frumvarpinu er líka lagt til að málsmeðferð hjá lögreglunni eða hjá lögreglustjóra verði breytt með einum tilteknum hætti sem þó hefur mikla þýðingu fyrir þolendur. Það hefur verið talað um að ákvörðun um nálgunarbann sé tekin af lögreglustjóra á heimilisvarnarþingi þolanda. En við fengum upplýsingar frá lögreglu um að þetta hafi reynst erfitt í framkvæmd. Með breytingunni sem hér er lögð til væri lögreglunni gert kleift að taka ákvörðun um úrræðin og framlengingu þeirra óháð heimilisvarnarþingi. Það er talið að þessi breyting muni stuðla að betri samfellu í meðferð mála á rannsóknarstigi og hjá dómstólum.
Samkvæmt frumvarpinu verður þessu rafræna eftirliti markaður ákveðinn tími. Það geti náð yfir hluta þess tíma sem úrræðinu er beitt eða allan þann tíma, allt að einu ári í senn í tilviki nálgunarbanns og í allt að fjórar vikur í senn þegar um brottvísun af heimili er að ræða.
Að síðustu eru í frumvarpinu lagðar til nauðsynlegar breytingar á almennum hegningarlögum til að viðurlög við brotum gegn rafrænu eftirliti séu í samræmi við núgildandi viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni eða brottvísun af heimili.
Það er mikilvægt að ræða það að nálgunarbann, brottvísun af heimili og rafrænt eftirlit telst ekki refsing í skilningi refsiréttar heldur ákvörðun sem takmarkar athafnafrelsi þess sem sætir því en brot gegn úrræðunum sjálfum er núna sjálfstætt refsivert brot samkvæmt hegningarlögum. Með frumvarpinu verður brot á því að sæta þessu rafræna eftirliti líka sjálfstætt refsivert brot. Það er því lagt til að brot gegn rafrænu eftirliti varði sömu refsingu og brot gegn nálgunarbanni eða brottvísun af heimili; sektir eða fangelsi allt að einu ári en fangelsi allt að tveimur árum ef brot er stórfellt eða ítrekað.
Virðulegi forseti. Frumvarpið byggir m.a. á því augljósa sjónarmiði að við lítum ekki á heimilisofbeldi sem einkamál þolenda heldur alvarlegt samfélagsmein og í því samhengi sé afar mikilvægt að koma á sterkum raunhæfum úrræðum til að bregðast við því. Þá liggur það sjónarmið líka til grundvallar frumvarpinu að ábyrgð á þessum brotum sé alltaf hjá geranda og aldrei hjá þolanda. Ég vonast auðvitað til þess að þetta mál fái góða og vandaða umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd og verði að því loknu að lögum og þegar af því verður þá hvet ég lögreglu eindregið til að nýta þetta úrræði. Við vitum hvað varðar ofbeldi inni á heimilum að konur eru í miklum meiri hluta þolenda. Þetta er staðreynd. Þetta frumvarp er auðvitað liður í aðgerðum þessarar ríkisstjórnar til að grípa til kraftmikilla aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi.
Mig langar til að nefna aðeins hverjar afleiðingar heimilisofbeldis eru. Fyrir utan hinar augljósu þá lýsa þolendur því hvernig það er að búa við stöðuga ógnartilfinningu, hvaða streita því fylgir, endurtekin áföll og það leiðir til hættu á þunglyndi og jafnvel sjálfsvígshugsunum. Hið sama á við um nýrra form brota sem er þetta svokallaða umsáturseinelti. Krónískt streituástand, m.a. vegna umsáturs og ofsókna, hefur auðvitað mjög augljós áhrif á öll lífsgæði fólks sem þessu sætir. Umsáturseinelti hefur líka í för með sér hættu á félagslegri einangrun, skertri þátttöku á vinnumarkaði eða í námi. Börn sem búa við ofbeldisaðstæður eru í aukinni hættu á að glíma við námserfiðleika, tilfinningavanda og hegðunarvanda. Rannsóknir sýna að heimilisofbeldi og umsáturseinelti stuðla að kerfisbundnum ójöfnuði í samfélaginu. Þeir einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu eru síðan frekar útsettir fyrir afleiðingum þessa ofbeldis.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess að um nýja framkvæmd er að ræða, er með frumvarpinu lagt til að horft sé til fyrstu tólf mánaða eftirlitsins sem tímabils þróunar og innleiðingar og að á því tímabili verði framkvæmt nánara mat á umfangi og þörf á stuðningi við þolendur og innleiðingu hjá lögregluembættunum. Markmið mitt með þessu frumvarpi er einfalt en mjög skýrt; að styrkja stöðu þeirra þolenda sem fyrir þessu ofbeldi verða. Það þarf að meta mannaflaþörf vegna eftirlits lögreglu og það þarf að meta hvaða þekkingu og færni þarf að liggja til grundvallar skilvirku eftirliti. Að innleiðingartímanum loknum yrði síðan framkvæmt mat á innleiðingunni og ávinningi og hvort þörf sé á að rýna einhver atriði í kjölfarið betur.
Gert er ráð fyrir því að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld en hins vegar er gert ráð fyrir samlegðaráhrifum þar sem rafrænt eftirlit, búnaður því tengdu og sú þekking sem verður til við þróun og innleiðingu eftirlitsins geti nýst í öðrum málaflokkum líka, t.d. í fangelsismálum, og dregið úr kostnaði til framtíðar litið. Þannig að þetta er einskiptiskostnaður sem nýtist síðan til frambúðar og í fleiri tilvikum og í öðru samhengi en er í þessu frumvarpi.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp bætir stöðu þolenda, ver þeirra hagsmuni. Það er mikilvægt skref í því að gera nálgunarbann og brottvísun af heimili að raunverulegum verndarúrræðum þar sem gripið er til aðgerða, ákveðið og af festu.
Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðarinnar með frumvarpinu og athugasemda við einstök ákvæði þess. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu. Ég trúi því og treysti að Alþingi standi með þolendum, því fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi, áreiti og ofsóknum, og herði viðbrögð samfélagsins við þessum brotum.