157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[13:52]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Í ljósi þess stutta tíma sem við fáum, vegna þess að hér eru fjórir hv. þingmenn í andsvörum, þá ætla ég aðeins að breyta nálgun minni frá því sem ég hafði hugsað mér. Mig langar að biðja hæstv. ráðherra að skýra fyrir mér örlítið betur þætti er varða skyldur sakbornings þar sem er talað um í þessu frumvarpi að sakborningi verði skylt að veita nauðsynlega aðstoð við að koma búnaði á og tryggja að hann sé virkur, m.a. með því að gæta að hleðslu og merkjasendingum, og að einungis lögreglu sé heimilt að eiga við búnaðinn. Í þessu samhengi, þá væntanlega varðandi viðurlög við því að sakborningur fylgi þessu ekki eftir, er gerð breyting á almennum hegningarlögum þannig að það verði refsivert að hindra rafrænt eftirlit af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Mig langar að biðja ráðherra að útskýra, ef hún getur, í stuttu máli fyrir okkur hvað gæti til að mynda fallið undir í þessu samhengi stórfellt gáleysi.