157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[13:56]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, að það er auðvitað langtum, langtum algengara að konur upplifi heimilisofbeldi en karlmenn. Þetta er kynbundið vandamál. Það á síður við þegar við erum að tala um umsáturseinelti. Þá erum við að tala um brot þar sem eru jafnvel engin tengsl á milli gerenda og þolenda. Svona klassískt dæmi úr menningunni er að það er þjóðþekkt persóna og svo er einhver einstaklingur sem fær þá manneskju á heilann. Starfshópurinn var hins vegar skipaður helstu sérfræðingum á sviðinu, en í starfshópnum sat líka aðstoðarmaður minn, Jakob Birgisson, sem er karlkyns, síðast þegar ég vissi.