nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir andsvarið. Í seinna andsvari mínu vildi ég spyrja, af því að hún svaraði ekki spurningu minni um dómstólana per se, ég er aðeins að reyna að átta mig á þessu, um að ég tók eftir því að í umsögnum í samráðsgáttinni var aðeins talað um að lögreglustjóri sé að sjá um þetta og ég get ekki lesið annað út úr þessu frumvarpi. Ég tók hnaut um að nokkrir umsagnaraðilar höfðu áhyggjur af því, hvort sem það er rétt eða rangt og það er þá bara fínt fyrir hæstv. ráðherra að svara þeim áhyggjum, að lögreglustjóri hefði í raun og veru bæði meðferðarvald og væri að sjá um þetta frá A til Ö. Ég vildi kannski fá að vita hvar dómstólarnir koma inn í þetta og hvort þetta sé eitthvað sem hæstv. ráðherra hefur einhverjar áhyggjur af, í raun og veru bara til að svara umsagnaraðilum.