157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:02]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er kannski rétt að byrja á að fagna því að hæstv. dómsmálaráðherra hafi staðfest kyn aðstoðarmannsins, en ég held þá áfram í þessu máli hér.

Ég vildi spyrja út í nálgunarbannið og það umhverfi sem núna ríkir um það vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra kom inn á það í sinni ræðu að þetta er náttúrlega strangt til tekið ekki refsing heldur eitthvert úrræði. Kom það fram í þessari umræðu um málið hvort þetta ætti hreinlega frekar að vera refsing til að hægt væri að nálgast þetta lagalega með þeim hætti fyrst þessar flækjur sem hæstv. dómsmálaráðherra rakti í þessu máli virðast koma ítrekað upp í tengslum við þetta? Eins og ég skil frumvarp hæstv. ráðherra þá er þarna verið að þyngja refsingu við broti á rafrænu eftirliti, sem er þá ökklabandið, en ekki verið að þyngja refsingu við broti á nálgunarbanninu sjálfu. Flest í þessu hljómar bara eins og ágætlega skynsamleg skref. Hvort sem það er í þessari fyrri eða seinni fyrirspurn, gæti hæstv. dómsmálaráðherra útskýrt líka á (Forseti hringir.) svokölluðu mannamáli hvaða aðstæðum er verið að bregðast við með þessu?