157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:04]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég byrja á því að ítreka og árétta kyn aðstoðarmanns míns, hann er karlkyns.

Þingmaðurinn spyr aðallega út í þetta sem ég nefndi; þetta er ekki refsing en brot á ákvörðun um að bera á sér þennan búnað verður refsivert. Þingmaðurinn spyr líka út í hvaða dæmi við erum að tala um. Ég get sagt að varðandi heimilisofbeldið er þetta mjög oft spurning um að þetta er að lokinni sambúð, þetta er að loknu sambandi sem fyrrverandi maki situr fyrir maka sínum fyrrverandi; bíður fyrir utan vinnustað, angrar með þeim hætti, endalaus símtöl, hvers kyns ógnandi hegðun. Umsáturseinelti getur líka oft farið fram með þeim hætti að það er rafrænt, rafrænar ofsóknir í gegnum samskiptamiðla.