157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:06]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé grundvallarleikbreytir. Með því að gerandi beri ökklaband þá er hann meðvitaður um að með honum er fylgst stöðugt og lögregla er í betra færi bæði til að bregðast við, brjóti hann gegn nálgunarbanninu, og til þess að gera það mál síðan upp fyrir dómi af því að það er orðið sjálfstætt, refsivert brot. Mér finnst ástæða til að nefna það að lögreglan hefur sjálf kallað eftir því að þetta verði gert. Þetta hefur gefið góða raun í Noregi. Fordæmið er þaðan og þetta gerir kerfinu kleift að bregðast hraðar við og auðveldar sönnun um brotið. Það eykur síðan tiltrú þolenda á kerfinu og er til þess fallið að fjölga þeim sem óska eftir þessu úrræði með þeim samfélagslega ávinningi að við náum betra og sterkara viðbragði gagnvart þeim gerendum sem ýmist eru í umsáturseinelti eða eru að hrella fyrrverandi maka eða hvernig svo sem það er. Þannig að ég held að það að geta beitt þessu rafræna eftirliti muni hafa mjög mikil og jákvæð áhrif.