157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kannski fyrst þetta um gildishlöðnu umræðuna, ég er bara að horfa á afbrotatölfræði, bæði tilkynnt brot til lögreglu, saksótt brot og dóma. Þá eru tölurnar allt aðrar en þessar sem þú ert að nefna. Ég ætla hins vegar ekki að halda því fram að karlmenn verði ekki fyrir þessum brotum. En þegar við hlustum á ákall þeirra sem hafa sætt ofbeldi af hálfu maka er tölulegur veruleiki málsins sá sem hann er. Vitaskuld geta allir orðið fyrir þessu ofbeldi en tölulegur veruleiki málsins er þessi. Ég heimsótti Vernd um daginn og þá var mér sýnt ökklaband og ég fékk að taka eitt með mér, ég get lánað hv. þingmanni. Ég veit nú ekki hvort það þolir sund, en í stuttbuxum þá myndi þetta sjást á þínum ökkla.