157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:11]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta áhugavert sjónarmið hjá hv. þingmanni og aftur vil ég ítreka og árétta að sannarlega ætlaði ég ekki að gefa til kynna að karlmenn gætu ekki orðið fyrir þessu ofbeldi, ég var einfaldlega að vísa í afbrotatölfræði. Hvað varðar karlmenn og jafnréttismálin vil ég nefna að ég sat nýlega fund jafnréttisráðherra Norðurlandanna og þá var verið að ræða þessa hluti. Ég er í þann mund að setja á fót hóp, karlahóp, til þess einmitt að rýna stöðu karlmanna út frá tilteknum afmörkuðum þáttum, þannig að ég er meðvituð um þetta. Varðandi þennan hóp þá var það þannig að við fengum tilnefningar. Það er undanþága í jafnréttislögum um það að þegar tilnefnt er í nefndir og ráð á vegum ríkis eða sveitarfélaga þá eigi aðilar að tilnefna bæði karl og konu en það sé heimilt að víkja frá því þegar hlutlægar ástæður eru fyrir hendi. Þarna vorum við t.d. að biðja um aðila frá Kvennaathvarfinu. Það leiðir af sjálfu sér að það eru verulegar líkur á því að sá fulltrúi sé kvenkyns. En ég reyni alltaf að vera vakandi fyrir þessu og var, eins og ég segi, aðallega að vísa til þess hvernig afbrotatölfræði lítur út hvað varðar heimilisofbeldi.