nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns byrja á að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir framsögu um þetta mál og hv. þingmönnum sem hér hafa tekið til máls fyrir umræðuna. Með þessu frumvarpi er lagt til að styrkja vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti með því að heimila lögreglu að beita rafrænu eftirliti samhliða nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Með rafrænu eftirliti er samkvæmt frumvarpinu átt við eftirlit í þeim tilvikum þegar manni, sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun.
Í 2. gr. frumvarpsins eru skilyrði rafræns eftirlits tíunduð, en þau eru m.a. að grunur sé um að ákvörðun um brottvísun af heimili eða nálgunarbann verði ekki virt og að rafrænt eftirlit teljist nauðsynlegt til að tryggja fylgni við ákvörðunina. Sakborningi ber að fylgja fyrirmælum lögreglu, svo sem að sjá til þess að búnaður sé virkur og að ekki hafi verið átt við hann á neinn hátt nema með atbeina lögreglu. Dvöl innan svæða sem nálgunarbann nær til er aðeins heimil með leyfi lögreglu. Lagt er til að felld verði niður krafa um heimilisvarnarþing brotaþola þannig að lögreglustjóri sem fer með rannsókn máls geti tekið ákvörðun um nálgunarbann, brottvísun, rafrænt eftirlit og framlengingu úrræðanna óháð varnarþingi. Er þetta til töluverðrar hagræðingar fyrir málið sjálft.
Rafrænni vöktun skal marka ákveðinn tíma sem getur náð yfir hluta eða allan gildistíma nálgunarbanns og/eða brottvísunar af heimili en rafræn vöktun getur aldrei staðið lengur en úrræðin sjálf, þ.e. brottvísun af heimili eða nálgunarbann.
Kveðið er á um skýra heimild lögregluyfirvalda til vinnslu nauðsynlegra persónuupplýsinga í löggæslutilgangi í samræmi við lög nr. 70/2019 og um reglugerðarheimild ráðherra til að útfæra framkvæmd, tæknilausnir og skyldur sakbornings sem sætir rafrænu eftirliti. Þá verður ríkislögreglustjóra einnig heimilt að setja reglur um framkvæmd rafræns eftirlits í þessu skyni samkvæmt frumvarpinu. Það er mjög mikilvægt að ekki er gert ráð fyrir að rafrænu eftirliti verði beitt nema fyrir liggi faglegt heildarmat og viðurkennt áhættumat lögreglu þar sem m.a. er litið til aðstæðna fyrir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, t.d. hvort stigvaxandi hætta sé á hótunum, áreitni og/eða ofbeldi gagnvart brotaþola. Jafnframt skal líta til annarra þátta sem gefa til kynna að sakborningur muni ekki hlíta ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, m.a. hvort sakborningur hafi áður brotið gegn slíkum ákvörðunum.
Tilefni lagasetningarinnar er aukinn fjöldi ofbeldismála og endurtekin brot gegn nálgunarbanni sem hafa sýnt að núverandi úrræði veita ekki nægilega vernd. Með rafrænu eftirliti er hægt að bregðast fyrr við hættuástandi og bæta sönnunarfærslu í málum sem varða brot gegn nálgunarbanni og brottvísun af heimili.
Frumvarpið byggir á reynslu Norðurlanda, einkum Noregs og Danmerkur þar sem rafrænt eftirlit hefur reynst árangursríkt. Lagt er til að lögreglustjóri geti tekið ákvörðun um rafrænt eftirlit þegar grunur er um að sakborningur muni brjóta gegn nálgunarbanni eða brottvísun af heimili og hið rafræna eftirlit telst nauðsynlegt. Þá er málsmeðferð einfölduð með því að fella niður kröfu um að mál er varðar brottvísun af heimili, nálgunarbann eða rafrænt eftirlit verði rekin á heimilisvarnarþingi brotaþola, eins og áður kom fram í máli mínu.
Frumvarpið samrýmist stjórnarskrá mannréttindasáttmála Evrópu enda er gætt meðalhófs og réttur til endurskoðunar fyrir dómstólum tryggður. Rafrænt eftirlit er vægara úrræði en gæsluvarðhald og markmið þess er að vernda líf og heilsu brotaþola og auka traust brotaþola til úrræðanna, þ.e. brottvísunar af heimili og nálgunarbanns, að það traust sé fyrir hendi. Viðurlög við brotum gegn rafrænu eftirliti verða í samræmi við viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni og brottvísun, þ.e. sektir eða fangelsi allt að tveimur árum fyrir ítrekuð og stórfelld brot.
Herra forseti. Ákvæði þessa frumvarps, verði það að lögum, eru líkleg til að auka réttarvernd brotaþola í málum er varða m.a. brot í nánu sambandi og eru eftir atvikum mikilvægt skref í baráttunni gegn heimilisofbeldi og kynbundnu ofbeldi. Málið gengur nú til hv. allsherjar- og menntamálanefndar, þ.e. eftir þá umræðu sem hér er í gangi, þar sem það mun fá viðeigandi og góða málsmeðferð. Markmið frumvarpsins er að tryggja öryggi brotaþola, styrkja réttarkerfið og senda skýr skilaboð um að ábyrgðin liggi hjá gerandanum, ekki þolandanum. Hagsmuna þess einstaklings sem sætir þar rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili er jafnframt gætt.
Vegna þeirra orða sem hér féllu áðan um refsingar þá stendur hér í greinargerð frumvarpsins um 10. gr., með leyfi forseta:
„Til samræmis við aðrar breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu þarf að gera breytingar á almennum hegningarlögum, verði frumvarpið samþykkt. Nálgunarbann, brottvísun af heimili og rafrænt eftirlit með úrræðunum er ekki refsing heldur ráðstöfun sem takmarkar athafnafrelsi þess sem hún er lögð á. Brot gegn úrræðunum er hins vegar sjálfstætt refsivert brot skv. 1. mgr. 232. gr. almennra hegningarlaga sem getur varðað sektum eða fangelsi allt að einu ári en fangelsi allt að tveimur árum ef brot er stórfellt eða ítrekað. Lagt er til að viðurlög við brotum gegn rafrænu eftirliti séu í samræmi við viðurlög ákvæða almennra hegningarlaga um brot gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Er því lagt til að nýr málsliður bætist við greinina sem mælir fyrir um að sömu viðurlög gildi þegar maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hindrar rafrænt eftirlit.“
Svo að þetta sé skýrt, eins og sá sem hér stendur skilur þetta, þá er um það að ræða að það er refsivert að brjóta gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Það hefur verið örðugt hingað til að færa sönnur á að slíkt hafi farið fram. Með því að setja á rafrænt eftirlit veitist lögreglu auðveldara að sanna og sýna fram á að brotið hafi verið gegn þessum úrræðum, sem er mikilvægt fyrir þolendur brotanna.
Eins og hér segir í síðasta málslið er því lagt til að „nýr málsliður bætist við greinina sem mælir fyrir um að sömu viðurlög gildi þegar maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hindrar rafrænt eftirlit“. Það gæti m.a. verið fólgið í því að eiga við búnaðinn eftir atvikum. Mig langaði að nefna þetta af því að það var umræða hér áðan um refsinguna.
Ég vil að lokum, herra forseti, gera orð hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur að mínum: Það eru ekki mannréttindi að fá að áreita fólk og ábyrgðin á að hvíla á gerandanum en ekki þeim sem fyrir ofbeldinu verða.