157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:20]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Grími Grímssyni fyrir hans ræðu hér. Nú talar hér líka maður af reynslu úr kerfinu sem hefur upplifað ýmislegt. Ég tek undir að þetta er afar mikilvægt mál hér og það er verið að horfa til annarra þjóða varðandi hvernig hægt er að gera þetta. Miðað við umsagnir og annað þá er spurning um verklagið og hvaða mælikvarðar eru notaðir til að meta hvort rafrænt eftirlit skili raunverulegum árangri eða aukningu í öryggi brotaþola. Hvernig er hægt að mæla það? Ég veit að þetta á að vera fælingarmáttur og auka öryggiskennd brotaþola. Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann hvernig hann metur það, hvað gæti verið skynsamlegt að gera í þessu því að þetta má heldur ekki vera falskt öryggi. Svo þarf að byggja þetta líka á réttum mælikvörðum þannig að mig langaði aðeins að fara út í það. Síðan í framhaldi af því, ég var að lesa það að í Danmörku eru svipuð lög um nálgunarbann og fleira. En það er líka samskiptabann þar sem má ekki hafa samskipti við viðkomandi. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvaða skoðanir og hvaða sýn hann hefur á því og hvað þurfi til að til þess komi, við þekkjum alveg til þess stundum að einstaklingar eru í viðkvæmri stöðu og vilja helst ekki vera í samskiptum við viðkomandi, hvort hann telji að það þurfi að skoða það hér eða hvort það sé alveg af og frá. Það væri áhugavert að heyra þetta frá honum út frá hans reynsluheimi í þessum málum.