nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir andsvarið. Varðandi útfærsluna þá held ég að það sé grundvallaratriði, eins og kemur fram í greinargerðinni og ég held að mér hafi tekist að anda út úr mér í minni ræðu, að það fari fram faglegt mat og síðan áhættumat lögreglu á því hvort það sé þörf á hinu rafræna eftirliti þegar raunverulega hin úrræðin hafi verið sett á, þegar lögregla hefur ákveðið annaðhvort að brottvísa af heimili eða setja á nálgunarbann. Það er auðvitað grundvallaratriði að þessu úrræði verði ekki beitt um of eða með of íþyngjandi hætti. Þó er rétt að benda á í því sambandi að fyrir menn, sem eru undir því að hafa annaðhvort verið brottvísað af heimili eða þeir eru í nálgunarbanni þegar þeir eru ekki traustsins verðir að fara eftir þeim reglum sem fyrir þá hafa verið lagðar í því sambandi, þá er þetta náttúrlega íþyngjandi. Það er ekki brotaþolans eða lögreglunnar að ákveða það heldur hefur viðkomandi komið sér í þá stöðu. En ég ítreka að það sé faglegt og mikið hættumat á því hvort um sé að ræða að viðkomandi brjóti gegn banninu.
Varðandi samskiptabann þá hygg ég, og kannski getur einhver leiðrétt mig ef ég fer rangt með, að það sé hluti af nálgunarbanni nú að það sé óheimilt að hafa samband við viðkomandi. Þannig að það er nú þegar orðið. Þá getum við kannski aðeins velt fyrir okkur hvernig við gætum útfært rafrænt eftirlit með því. En auðvitað nær rafrænt eftirlit ekki yfir það, þ.e. ekki ökklaband. Það mun ekki koma í veg fyrir að rafrænu einelti verði beitt gagnvart brotaþola.