nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar annað andsvar. Ég held að sá sem hér stendur muni alltaf svara því á næstu misserum að það vanti úrræði fyrir lögregluna. Þá á ég við frekari bjargir. Hvað þetta varðar þá held ég að menn eigi ekki að vera með neitt sakleysi í því sambandi. Þetta mun auðvitað kosta einhverja peninga. Það mun þurfa að sinna þessu. Öðruvísi munum við ekki fá fram þetta traust sem brotaþolinn þarf að upplifa af því að rafrænt eftirlit sé með viðkomandi.
Það kemur fram í greinargerðinni með frumvarpinu að gert sé ráð fyrir því að það sé sett reglugerð og eftir atvikum reglur ríkislögreglustjóra um framkvæmdina, þar með talið tæknilega framkvæmd. Það blasir við mér, án þess að það segi eitt né neitt um hvernig þetta verður framkvæmt, að að einhverju leyti verði reynt að sinna þessu á fjarskiptamiðstöð lögreglunnar sem er með landsvísuumboð, sinnir fjarskiptum og útköllum, að taka við hringingum alls staðar af landinu. Hvort hægt sé að fela þeirri einingu lögreglunnar eftirlit með þessu blasir kannski við, án þess að það sé að sjálfsögðu einhver niðurstaða í því sambandi, en mér þætti það ekki óeðlilegt.
En ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við höldum okkur við að skýra það sem áður hefur komið fram, að með þessu sé verið að auka traust á úrræðum og mér finnst það grundvallaratriði og ég fagna því að þetta sé komið á. Ég ítreka að það verður að skoða allar hliðar. Meðalhófið skiptir máli, það á ekki að beita íþyngjandi aðgerðum umfram það sem nauðsynlegt er og ég hef fulla trú á því að það verði gert.