157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:28]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég verð að nýta þá stöðu að við erum hér með hv. þm. Grím Grímsson, reynslubolta úr þessum málum, og mögulega mun hann ekki geta svarað öllu sem ég legg hér fyrir hann. En ef maður hugsar um þetta mál í heildarsamhengi og að þeir sem leggja í t.d. eineltisumsátur, sem er gríðarlegt ofbeldi gagnvart þeim sem lendir í því, það er örugglega stórfurðulegt hugarástand og einhver áráttuhegðun sem stýrir því. Einhver tengsl hafa myndast, örsmá eða mikil, jafnvel engin og menn eru komnir í einhvern ímyndaðan heim.

Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er hvort það væri, til þess að minnka líkur á því að nálgunarbannið sé rofið, viskulegt að samhliða þessu skapa einhvers konar úrræði fyrir líklega meinta gerendur eða gerendur í þessum málum? Þarna er það þolendum líka til góða að losna við eða minnka líkur á að þeir verði fyrir brotum á nálgunarbanni, þannig að þetta væri aðgerð til að slá einhvers konar tvær flugur í einu höggi í því. Hvort hv. þingmaður, sem hefur unnið að alls konar málum sem tengjast einhvers konar hegðun, ofbeldi, telji að meðferð gagnvart því gæti nýst til að minnka líkur á að nálgunarbann verði rofið og þá til heilla, bæði fyrir þann sem myndi rjúfa það og sérstaklega fórnarlambið eða þolandann sem á náttúrlega ekki að þurfa einhvers konar áréttingu eftir að það er komið á nálgunarbann.