nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen hans seinna andsvar. Í fyrsta lagi varðandi þá fyrirmynd sem vísað er til á Norðurlöndunum þá er þetta fyrst og fremst að norskri fyrirmynd og þar hefur reynslan verið góð. Ég er ekki með neinar tölur á hraðbergi varðandi það en við eigum auðvitað að horfa til þess að þetta hafi fælingarmátt. Við getum kannski frá þeim punkti haldið áfram yfir í seinni spurninguna sem varðaði eftirlit og tækni. Í mínum huga er grundvallaratriði að við notum tæknina. Ég held að það sé ekki sérstaklega flókið að merki berist þeim sem hafa eftirlit þegar annaðhvort viðkomandi nálgast það svæði sem má ekki fara inn á og/eða er kominn inn á það, einhvers konar gult og rautt, ef ég mætti orða það þannig. Það fer auðvitað eftir því hvers konar mál þetta er, hversu alvarlegt, hversu alvarlegt ofbeldisbrotið var sem viðkomandi hefur verið úrskurðaður í nálgunarbann eða brottvísun af heimili út af, hversu hratt þurfi að bregðast við en að mínu mati ætti þetta alltaf að vera forgangsatriði. Það er auðvitað búið að ákveða að viðkomandi sæti nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Það hefur verið litið þannig á hans hegðun að hún sé hættuleg brotaþolanum og þegar hann hefur ekki látið segjast hefur verið ákveðið að hafa rafrænt eftirlit með honum. Þá liggur það svolítið í hlutarins eðli, af því að viðkomandi hefur ekki látið segjast eins og ég sagði áðan, að það þurfi að hafa eftirlit með honum og mér finnst grundvallaratriði að það sé brugðist hratt við. Ég veit ekkert hvernig þetta verður sett á og ég held að það hljóti að þurfa ákveðinn tíma og aðlögun til að meta hvernig þetta verði best gert. En ég hef fulla trú á því að þetta verði gert með viðeigandi hætti og verði brotaþolum til aukinnar hugarróar.