157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

298. mál
[14:37]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Hér erum við að ræða frumvarp sem snertir einn viðkvæmasta og jafnframt alvarlegasta málaflokk samfélagsins sem snýr að vernd brotaþola heimilisofbeldis og umsáturseineltis. Málaflokk þar sem afleiðingar rangra ákvarðana geta verið alveg gríðarlegar, bæði fyrir einstaklingana og samfélagið í heild. Þess vegna ber okkur að vanda sérstaklega til verka þegar við erum að breyta lögum í tengslum við þetta. Þegar maður les yfir frumvarpið og greinargerðina þá er auðvitað verið að byggja á reynslu Norðurlandanna og markmið frumvarpsins er skýrt og má segja að það sé réttmætt, að auka öryggi brotaþola með því að heimila rafrænt eftirlit samhliða nálgunarbanni og brottvísun af heimili. Umsagnir bárust um þetta mál í samráðsgátt þar sem kemur skýrt fram að það er víðtækur skilningur á þörfinni fyrir sterkari úrræði og að þörf sé á frekari úrræðum þar sem núverandi úrræði skili ekki tilætluðum árangri. Umsagnir komu m.a. frá umsagnaraðilum sem starfa daglega með brotaþolum og og þeir benda á að nálgunarbann eitt og sér dugi ekki alltaf til, sérstaklega þegar um ítrekað brotamynstur er að ræða. Í umsögnunum er einnig bent á að rafrænt eftirlit geti haft fælingarmátt, eins og komið hefur fram í umræðunni, og aukið öryggistilfinningu brotaþola og styrkt sönnunarfærslur þegar brot eiga sér stað. Þetta eru auðvitað mikilvægar ábendingar sem undirstrika að tæknileg úrræði geta, rétt notuð, styrkt réttarkerfið okkar.

Frú forseti. Jafnframt kemur líka skýrt fram að lagasetningin ein og sér leysi ekki vanda. Það er verið að benda á hversu mikilvægt það er, hvernig framkvæmdin er í rauninni gerð, hvernig hún verði útfærð. Lögregla og aðrir umsagnaraðilar leggja áherslu á að rafrænt eftirlit krefjist verulegs undirbúnings, bæði hvað varðar mannafla, þjálfun og tæknilega innviði. Komið var inn á fjármuni áðan og það kemur fram í greinargerðinni að þeir séu einskiptisfjármagn sem er hugsað til þess að bæta tæknilega innviði og fleira. Það er mjög mikið álag á lögreglunni nú þegar. Það er vissulega verið að fjölga lögreglumönnum sem var á áætlun fyrri ára og er verið að framfylgja því líka núna, sem er mjög jákvætt. Hins vegar vitum við að lögreglan kemst ekki í öll verkefni núna þannig að þegar við erum að samþykkja lög hér er afar mikilvægt að við fylgjum þeim eftir svo þau raungerist. Annars er hætt við því að úrræðið verði veikt í framkvæmd og missi í rauninni þennan fælingarmátt, standist það ekki þessar væntingar sem brotaþolar gera réttilega til þess.

Í umsögnum frá réttindasamtökum er jafnframt lögð rík áhersla á meðalhófið. Rafrænt eftirlit, eins og hefur komið fram í máli manna hér á undan, er íþyngjandi úrræði og því verður að tryggja að því sé aðeins beitt þegar raunveruleg þörf er til staðar á grundvelli einstaklingsbundins og rökstudds mats. Umsagnaraðilar hafa varað við því að það verði sjálfgefið að úrræðið verði notað til að bæta upp skort á öðrum úrræðum í kerfinu. Við heyrum að það er aukinn fjöldi ofbeldisbrota og þetta er eitt verkfæri sem við erum að bæta við til að bregðast við því, sérstaklega við endurteknum brotum. Við sjáum líka aukið ofbeldi hjá ungu fólki alveg niður í framhaldsskóla og grunnskóla og maður veltir því fyrir sér líka í því ljósi, þar sem ráðherrann situr hér undir þessum umræðum, hvort við þurfum ekki að fara að huga líka meira að forvörnum og sérstaklega hjá ungu fólki. Nú veit ég ekki hvað er í gangi hjá ríkisstjórninni en þetta er í rauninni svolítið mein í samfélaginu okkar og oft brýst þetta út hjá einstaklingum vegna mikillar vanlíðanar og fleira, örugglega margar ástæður fyrir því. En ég held að við getum komið í veg fyrir mörg af þessum atvikum ef við ráðumst í frekari forvarnir og auðvitað dregur það úr kostnaði til lengri tíma litið. Ég held að það sé afar mikilvægt.

Persónuvernd er annað atriði og kemur oft upp í alls konar málum. Lögð er áhersla á það af umsagnaraðilum að hér sé um að ræða vinnslu afar viðkvæmra persónuupplýsinga. Því er mikilvægt að það liggi skýrt fyrir hver ber ábyrgð á gagnavinnslunni, hversu lengi gögn eru varðveitt og hvernig eftirliti með notkun þeirra er háttað því að traust almennings á réttarkerfinu byggir einmitt á því að þessi atriði séu skýr og þau séu gagnsæ.

Það er líka verið að tala um það að rafrænt eftirlit megi ekki verða staðgengill fyrir stuðning við brotaþola. Vernd felst ekki eingöngu í tæknilegum úrræðum heldur einnig í aðgengi að ráðgjöf, upplýsingum og þjónustu. Verið er að leggja til að það verði tryggt betra samspil á milli lögreglu, félagsþjónustu og sérhæfðra úrræða fyrir brotaþola.

Frú forseti. Ég held að það sé afar mikilvægt að við tökum tillit til þessara umsagna. Nú mun þetta mál fara inn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þar sem ég sit ásamt góðum félögum. Þar munum við kalla eftir umsögnum og fá umsagnaraðila til okkar og það getur vel verið að þetta muni taka einhverjum breytingum. Hvort það verði gert skal ég ekki segja en frumvarpið er vissulega skref í rétta átt, hárrétta átt. Því þarf að fylgja eftir með skýrum aðgerðum og fjármagni til að það raungerist. Í umsögnum er líka lagt fram að settir verði skýrir mælikvarðar á árangur rafræns eftirlits, m.a. með reglubundnu mati á því hvort endurteknum brotum fækki, sem er væntanlega m.a. tilgangurinn, og hvort öryggi brotaþola aukist í reynd.

Svo er líka vangavelta varðandi skýrslugjöf, bara um framgang málsins: Er þetta að skila tilætluðum árangri? Er endurteknum brotum að fækka, upplifir brotaþoli sig öruggari o.s.frv.? Kannski væri áhugavert að fá slíka eftirfylgni til þess að þróa úrræðið og taka breytingum ef þörf er á.

En mín afstaða í þessu máli er mjög jákvæð, auðvitað með þeim fyrirvara að við eigum eftir að sjá hvaða umsagnir berast. Við fyrstu sýn, af þeim umsögnum sem maður sér í samráðsgátt og þeim umræðum sem hafa átt sér stað út frá þessu máli, þá er þetta skref í jákvæða átt. Ég fagna því að ráðist sé í að styrkja vernd brotaþola og taka alvarlega þá gagnrýni sem hefur komið fram á þau úrræði sem eru til staðar í dag. Eins og umsagnirnar sem ég hef verið að fara yfir hér sýna er lykilatriði að tryggja jafnvægi á milli öryggis, mannréttinda og raunhæfrar framkvæmdar. Ef okkur tekst að nýta þær ábendingar og tillögur sem hafa komið fram hér og tryggja fjármagn og faglega eftirfylgni, ef þetta liggur fyrir, þá er ég alveg sannfærð um að við getum náð breiðri sátt um þetta mál því það er auðvitað bara forsendan fyrir því að þetta frumvarp nái fram að ganga, fyrir utan að þetta væri líka til þess að auka enn frekar traust á kerfið sem er afar mikilvægt í þessum málaflokki, mjög mikilvægt.

Ég ætla að láta máli mínu lokið hér í bili en það verður áhugavert að fá þetta mál inn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd.