almenn hegningarlög.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mig langar kannski að byrja á að segja, af því að sú sem hér stendur hefur verið töluvert að kvarta og halda þessari ríkisstjórn við efnið, kvarta yfir frumvörpum og greinargerðum, að bæði það frumvarp sem við ræddum hér áðan og þetta eru mjög vel unnin frumvörp. Ég er líka svo ánægð, frú forseti, þegar við getum í frumvörpum lesið okkur aðeins til um hvernig málum er háttað annars staðar, eins og á Norðurlöndunum og gert samanburð við það, þannig að ég ætla að fá að hrósa hæstv. ráðherra og ráðuneyti hennar fyrir það. Það er til mikilla bóta.
Ég ætla líka að segja að ég er ánægð með að það sé, eigum við að segja, verið að takast á við þetta verkefni. Ég er sammála hæstv. ráðherra, því miður, þetta hefur ekki verið í nógu góðum málum. Og nú hef ég reynt að renna yfir þetta frumvarp hérna og reynt að hlusta á framsögu hæstv. ráðherra og auðvitað tengist þetta líka því sem hæstv. félagsmálaráðherra mun koma með. Það hefur líka verið svolítið vandamál, þessu hefur svolítið verið hent á milli ráðuneyta og sveitarfélaga. Spurning mín til hæstv. ráðherra, og ég biðst afsökunar á því ef það er þarna inni í greinargerðinni þótt ég hafi ekki fundið það í fljótu bragði, er hvernig við bregðumst við þegar maður hefur verið dæmdur og setið af sér en er svo metinn þannig af fangelsismálayfirvöldum að af honum kunni að stafa hætta. Það er kannski mál sem ég held að hæstv. ráðherra hafi nefnt hér sem eitt af þessum hræðilegri málum sem við höfum upplifað á síðari árum, vegna þess að þetta er auðvitað flókið. Viðkomandi hefur þá verið dæmdur sakhæfur, hefur setið af sér í einhverju sem við viljum að sé betrunarvist en tókst kannski ekki til sem slík. Nær þetta frumvarp eitthvað yfir slík tilvik?