157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[17:50]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þarf ekki að endurtaka hvað mér finnst um staðinn og er sammála báðum hv. þingmönnum sem hafa komið inn á það. Ég reikna með að til viðbótar við það skólastarf sem mun fara fram í hestafræðum, jafnvel ferðamálafræðum, og uppbygginguna sem verður þar, hvort sem Brúnastaðir verða keyptir eða hvort eitthvað annað verður byggt, þá sé þetta auðvitað ákjósanlegur staður líka fyrir menningartengda og hágæðaferðaþjónustu. Húsnæðið er löngu komið á tíma og það þarf einhver öflugur aðili að stíga þar inn og það verður örugglega hægt að búa til verðmæti úr því. Það gæti verið hagur ríkisins, að mínu áliti a.m.k., að koma því í hendurnar á réttu fólki án þess að það verði of íþyngjandi að gera það upp og byggja það upp.

Síðan tengjast auðvitað fjölmargar byggingar þarna öðrum málaflokkum sem eru líka nátengdar áhugasviði ferðaþjónustuaðila, eins og Auðunarstofa þar sem verður alltaf menningartengd starfsemi og Hólakirkja sem er náttúrlega gríðarlega mikilvæg í okkar sögu og byggingarlistasögu líka. Á Sauðárkróki (Forseti hringir.) get ég ekki sagt til um nákvæman tímaramma. Það er verið að ræða það í góðu samtali við skólann og sveitarfélagið fyrir norðan. Það mun fela í sér margvíslegt hagræði að vera með það þar.