samstaða um málefni Grænlands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég get tekið undir að á ólgutímum sem þessum er það mikið ábyrgðarhlutverk hjá okkur sem erum í forystu í stjórnmálum að við ýkjum ekki ágreining og sýnum samstöðu. Ég ætla ekki að að halda því fram að hér sé um auðvelda stöðu að ræða en ég held að það hljóti að vera ljóst, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, að Ísland þarf að standa þétt með Grænlendingum. Sem stolt fullvalda þjóð í Norður-Atlantshafi þurfum við að standa og viljum standa með Grænlendingum. Þetta er flókin staða þótt þetta prinsipp sé skýrt. Ég mun ekki gefa tommu eftir sem forsætisráðherra þegar kemur að því að standa með sjálfsákvörðunarrétti Grænlendinga. Þeir hafa sagt það sjálfir hvernig þeir vilja sjá sína framtíð þróast og við eigum að virða það. Við eigum vissulega náið og sérstakt samband við Bandaríkin en það breytir því ekki að framganga núverandi Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi og gagnvart Danmörku er óásættanleg og henni verður að linna. Ég vona svo sannarlega að allir hér inni geti sammælst um það.
Hvað varðar samráð og samtal tek ég að fullu undir með hv. þingmanni að það er mikilvægt að við eigum hér reglulegt samtal. Ég hafði samband við formenn allra stjórnmálaflokka í gær til að óska eftir slíku samtali. Við erum að finna tíma til að setjast yfir þetta saman. Utanríkisráðherra er á óvæntum fundi í dag. Það er mikið að gerast á alþjóðasviðinu og skiptir máli að Ísland taki þátt í þeim samræðum. Sem allra fyrst, vonandi á morgun eða hinn, munum við taka slíkan fund og ég vænti þess að við eigum gott samtal um þessa stöðu sem uppi er og sjáum upp að hvaða marki, vonandi fullu marki, við getum samstillt okkar strengi því þetta er risastórt hagsmunamál fyrir okkar næstu nágranna en líka fyrir íslenska þjóð.