157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samstaða um málefni Grænlands.

[15:09]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Eins og ég sagði áðan munum við eiga samtal hér, flokksformenn, á allra næstu dögum og halda því samtali virku. Ég held að það sé mikilvægt. Já, ég er á þeirri skoðun að við eigum ekki að ýkja ágreining og æsa upp sundrung að óþörfu. Ég held hins vegar að við verðum að halda okkar valkostum opnum og það lá alltaf fyrir við myndun þessarar ríkisstjórnar að eitt af því sem myndi liggja fyrir á kjörtímabilinu væri að greiða atkvæði um það hvort við myndum halda áfram aðildarviðræðum. Þetta er spurning sem íslensk þjóð getur svarað og ég treysti henni, sérstaklega á tímum sem þessum, til að veita okkur leiðsögn um það hvort hún vilji halda ákveðnum valkostum opnum.

Ég vil líka segja: Frjáls og fullvalda þjóð treystir sér til að taka þátt í slíku samtali, treystir sér til að taka eigin ákvarðanir, treystir sér til að halda sínum valkostum opnum og þarf ekki að hræðast það að fara í slíka vegferð út af ástandinu sem núna er uppi og það er ekki alveg svo að staða Danmerkur í Evrópusambandinu hafi ekki haft neina einustu meiningu fyrir það land því það er alveg ljóst að Evrópuleiðtogar hafa stigið fast niður á undanförnum dögum, mun fastar og meira en ég hafði þorað að vona, og það munar um það þegar þú ert nokkurra milljóna þjóð að fá slík viðbrögð og samstöðu.