skipting málaflokka milli ráðuneyta.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég kann að meta það að fólk velti forminu og lagatæknilegum atriðum fyrir sér. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er óvenjulegt og þetta er ekki staða sem hefur komið upp oft áður en sannarlega er það ekki svo að sú sem hér stendur riti undir forsetaúrskurð um skiptingu málefna og starfa ráðherra án þess að það sé farið yfir lagalegu hliðina á því. Aðdragandinn að þessari breytingu er sú að það er, eins og fram kom í máli hv. þingmanns, samkomulag milli ráðherra í sama flokki um að menntamálaráðherra fylgi þessu verkefni eftir. Þetta hefur gengið mjög vel undir hennar stjórn. Samkomulag er um 460 ný rými sem hafa bæst við bara á þessu ári eftir að ráðherra stígur inn í þennan málaflokk. Þetta er áherslumál í stjórnarsáttmála sem hæstv. ráðherra vildi fylgja eftir.
Varðandi lagalegu hliðina þá er það svo að forsætisráðuneytið telur að þessi breyting standist lög og stjórnarskrá. Það eru fordæmi fyrir því að stjórnarmálefnum eins og sama ráðuneytis sé skipt á milli ráðuneyta en sem dæmi má nefna að á sínum tíma þegar voru hér tvö stærri ráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið annars vegar og velferðarráðuneytið hins vegar, árin 2016 og 2017, þá fóru ítrekað tveir ráðherrar með ákveðna málaflokka þar samkvæmt forsetaúrskurði. Þá hafa ráðherrar líka farið tímabundið með málefni í fleiri en einu ráðuneyti eftir myndun ríkisstjórna. Þetta var allt gert samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra, rétt eins og núna. Ég vil hins vegar að það liggi fyrir að félags- og húsnæðismálaráðuneytið fer áfram með stjórnarmálefnið hjúkrunarheimili en það fer með ráðgjafarskyldu gagnvart mennta- og barnamálaráðherra og það er mennta- og barnamálaráðherra sem ber þannig pólitíska og lagalega ábyrgð á þessum málaflokki. Því er það ekki svo að verið sé að kippa málaflokknum út úr ráðuneytinu. (Forseti hringir.) Þetta snýst fyrst og fremst um þessa yfirsýn og það er búið að liggja yfir þessu í ráðuneytinu hjá mér.