157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

skipting málaflokka milli ráðuneyta.

[15:15]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér vísaði hæstv. forsætisráðherra til mála sem eru algerlega eðlisóskyld því sem hér um ræðir. Árið 2016 og fyrr og oft hefur ráðherrum verið skipaðir með forsetaúrskurði málaflokkar undir ráðuneyti og ráðherra með þeim hætti sem þar var gert. Það er algerlega eðlisólíkt því sem hér er um að ræða. Hér virðist vera um það að ræða að ráðherra og ráðuneyti hafi verið sundurslitin. Ég spyr aftur: Telur hæstv. forsætisráðherra að lög um Stjórnarráð Íslands leyfi slíkt? Í mínum bókum, eftir að hafa skoðað þetta, finn ég þess ekki nokkur dæmi að þessi framkvæmd hafi verið viðhöfð, ekki nokkurt einasta dæmi. Þau dæmi sem hæstv. forsætisráðherra nefndi hér eru algjörlega eðlisólík. Hvað efnið varðar hins vegar væri líka fróðlegt að heyra það hvort hæstv. ráðherra telji það boðlegt að þessi málaflokkur, uppbygging hjúkrunarheimila, heyri undir barnamálaráðuneytið þegar lög um Stjórnarráð Íslands kveða sérstaklega á um það að skipa eigi eðlislíkum málum saman (Forseti hringir.) í sama ráðuneyti. Hæstv. forsætisráðherra ætti nú kannski að velta því fyrir sér hvort færi ekki betur á því að þessi málaflokkur heyrði undir heilbrigðisráðuneytið fremur barnamálaráðuneytið. En það er gott að heyra það að hæstv. forsætisráðherra telur þetta í samræmi við lög. (Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að skoða það betur, þetta form, en þó ekki síður hvað efnið varðar.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir þingmenn á ræðutímann.)