skipting málaflokka milli ráðuneyta.
Frú forseti. Ég vil ítreka, bara svo að það sé ekki misskilningur, að hjúkrunarheimilin heyra ekki undir barnamálaráðuneytið. Þessi málaflokkur er enn þá undir félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Það er hins vegar mennta- og barnamálaráðuneytið sem fer með pólitíska og lagalega ábyrgð á málaflokknum og það var einmitt ákveðið að færa þetta ekki yfir sökum þessa. Starfsemin fer enn þá fram í umræddu ráðuneyti og það liggur alveg fyrir. Ég ítreka bara það sem ég sagði áðan, að forsætisráðuneytið hefur lagt mat á þessa breytingu, annars hefði henni ekki verið stillt upp með þessum hætti, og telur að þetta standist lög og stjórnarskrá. Ég hef sagt fyrir mína parta að auðvitað er þetta óvenjulegt fyrirkomulag en það er líka óvenjulegt að það takist að hrinda í framkvæmd og koma af stað 460 nýjum hjúkrunarrýmum á einu ári. Það er bara ýmislegt óvenjulegt sem hefur verið gert í þessari ríkisstjórn en kannski er það það sem þurfti til. Ég held að aðalmálið hljóti að vera árangurinn sem við skilum af okkur í þessum málaflokki (Forseti hringir.) og ég veit að hæstv. ráðherra, Inga Sæland, verður manna fyrst til að viðurkenna það ef hún telur betur mega fara og að þetta sé ekki að skila þeim árangri sem þörf er á, vegna þess að hún brennur fyrir málefninu.