verkaskipting ráðuneyta.
Frú forseti. Mig langar til að vera á sömu nótum og hv. þm. Sigríður Á. Andersen og eiga orðastað við hæstv. forsætisráðherra. Í beinu framhaldi af því samtali sem var hér áðan og fyrirspurn langar mig til að spyrja hæstv. forsætisráðherra, og í ljósi þessara vendinga, hvort hringlandahættinum í málefnum aldraðra, sem er nýjasta axarskaftið hjá ríkisstjórninni, eigi að ljúka með þeim hætti sem kom fram í síðustu fyrirspurn. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að klippa í sundur ábyrgðina á málefnum aldraðra með því að færa afmarkaðan hluta hennar frá félags- og húsnæðismálaráðherra til barna- og menntamálaráðherra, málefnasvið sem hefur merkilegt nokk ekkert með aldraða að gera. Stjórn, skipulag og stefnumótun verður áfram á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra sem og öll önnur þjónusta fyrir aldraða, nema það eitt að byggja hjúkrunarheimili og þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk. Ég get ekki séð að það verði færð nein sérstök rök fyrir þessari ákvörðun sem augljóslega hefur engan annan tilgang en að gera nýjum barna- og menntamálaráðherra áfram kleift að nást á mynd við að klippa á borða við opnun hjúkrunarheimila. En þetta er ekki eina tilfellið sem um hefur verið að ræða í þessari stjórnartíð. Ég vil minna á það að í tíð hæstv. atvinnuvegaráðherra var ákveðið að flytja svokallaðan 5,3% pott yfir í innviðaráðuneytið og því hlýtur maður að spyrja: Hvernig stendur á því að það er endalaust verið að færa málefni á milli ráðuneyta til þess að uppfylla duttlunga, ætla ég að leyfa mér að segja, Flokks fólksins um það hver eigi að stýra viðkomandi málaflokkum? Ég vona að forsætisráðherra geti svarað því.