verkaskipting ráðuneyta.
Virðulegur forseti. Þetta var athyglisvert svar hjá hæstv. forsætisráðherra. Ég held að hún haldi að hún sé þjálfari knattspyrnuliðs og geti bara valið þá leikmenn sem henni dettur í hug að tefla fram á völlinn. Ég ætla að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Finnst forsætisráðherra það ábyrgt af hennar hálfu að veita hæstv. mennta- og barnamálaráðherra vald án nokkurrar ábyrgðar, sérstaklega þegar umræddur ráðherra hefur ekki einu sinni heldur tvisvar brotið lög í starfi; annars vegar með því að láta hjá líða að skipa í stjórn Tryggingastofnunar þrátt fyrir lagaskyldu þar um og hins vegar þegar hún braut jafnréttislög við skipan í stjórn HMS? Finnst ráðherra það ásættanlegt að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra geti brotið lög í málefnum hjúkrunarheimila án þess að bera nokkra lagalega ábyrgð á því og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra beri þá lagalega ábyrgð á málefni sem hann fer ekki sjálfur með?