aðgerðir stjórnvalda vegna verðbólgu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir greinargott svar við spurningu minni. Það er sem sagt Seðlabankans að bregðast við. Ég gat ekki skilið hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra betur en að sú fjármálaáætlun sem lögð var fram ætti bara að halda og plan ríkisstjórnarinnar væri þar af leiðandi að bregðast ekkert við og treysta á að senda boltann upp í Seðlabanka. Mér finnst þetta alveg með ólíkindum, virðulegur forseti, og kemur mér á óvart. Það er alveg rétt að það eru ófyrirséðir atburðir og það er einmitt þess vegna sem menn þurfa stundum að breyta og gera lagfæringar til að stilla af kúrsinn. Ég trúi ekki öðru en að hæstv. ríkisstjórn sjái það að sú fjármálaáætlun sem lögð var fram hér síðasta vor er ekki að ganga eftir. (Forseti hringir.) Þau markmið og þeir mælikvarðar, þó að þau væru ósýnileg nánast öllum, það er ekki að ganga (Forseti hringir.) eftir sem var talað um þar þannig að menn hljóta og verða að bregðast við. Fólkið í landinu er að kalla eftir því.