157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:39]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040. Þetta er langþráður áfangi, enda hefur samgönguáætlun ekki verið samþykkt á Alþingi síðan árið 2020. Tillaga var vissulega lögð fram 2023 en hún var ekki afgreidd.

Samgönguáætlun byggir á víðtæku samráði og boðar skýra stefnubreytingu. Sterkir innviðir verða aftur forgangsmál og drifkraftur hagsældar á Íslandi. Samgönguáætlun er lögð fram í einu lagi til 15 ára og skiptist í tvo hluta, annars vegar stefnumótandi áætlun til 15 ára og hins vegar aðgerðaáætlun fyrir fyrstu fimm ár tímabilsins. Áætlunin byggir á stefnumótunarferli sem hófst í byrjun árs 2021 og endaði á opnum íbúafundum í ágúst síðastliðnum. Yfirskrift fundanna var „Fjárfest í innviðum til framtíðar“ og voru þeir haldnir í öllum landshlutum. Tilgangurinn var að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins; samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, fjarskipti og stafræna innviði. Ég vil þakka öllum sem mættu. Fjöldi athugasemda bárust og hafa margar þeirra haft áhrif á þessa tillögu sem ég mæli hér fyrir.

Samgönguáætlun tekur mið af fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Þar er stefnt að hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. Ef svigrúm eykst mun það hafa jákvæð áhrif á ramma samgönguáætlunar, forgangsröðun framkvæmda, viðhald og þjónustu. Stefnumótunin byggist á þeim markmiðum að samgöngur séu öruggar, greiðar, hagkvæmar og umhverfislega sjálfbærar. Jafnframt skulu þær stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Við munum vinna að 17 lykilviðfangsefnum til að ná settum markmiðum. Næstu ár verða öryggi, fækkun slysa og uppbygging samgöngumannvirkja áfram lykilviðfangsefni.

Samgöngur þurfa að mæta þörfum samfélagsins með áherslu á nýsköpun, verðmætasköpun og farnetsamband á þjóðvegum. Í tillögunni skilgreinum við grunnnet samgangna sem þau mannvirki sem bera meginþunga umferðarinnar, Uppbygging, viðhald og rekstur grunnnetsins er í forgangi. Hér er um að ræða 5.000 km af vegum sem tengja allar byggðir yfir 100 íbúa, 38 umferðarmestu hafnirnar, 13 flugvelli, ferjuleiðir og gáttir við útlönd.

Það verður að horfast í augu við að fjárfesting í innviðum á Íslandi hefur ekki fylgt vexti hagkerfisins um langt skeið. Hún hefur verið einna minnst meðal OECD-ríkja eða um 0,6% af landsframleiðslu. Ég tel gríðarlega mikilvægt að við aukum þetta hlutfall sem allra fyrst og það mun verða gert í þessari samgönguáætlun, með innviðafélagi og þeim framkvæmdum sem þar munu verða. Á sama tíma hefur álag á vegakerfið stóraukist, m.a. vegna fjölgunar ferðamanna og aukinna þungaflutninga. Þjónustugetan er víða komin að þolmörkum. Nú er svo komið að einungis tæplega 40% af vegakerfinu er metið í góðu ástandi. Því ætlum við að breyta.

Fjárhagsrammi fyrstu fimm ára tekur mið af fjármálaáætlun 2026–2030, eins og áður sagði. Á því tímabili ráðstöfum við 361 milljarði kr. til samgöngumála. Á 15 ára tímabili áætlunarinnar til ársins 2040 verður varið rúmlega 1.000 milljörðum kr. til málaflokksins. Þar af fara 911 milljarðar til vegamála. Á fyrstu fimm árunum fara tæpir 278 milljarðar kr. til Vegagerðarinnar, rúmir 23 milljarðar til flugvalla, 17,6 milljarðar kr. til Samgöngustofu, tæpir 7 milljarðar kr. til Hafnabótasjóðs og rúmur 1,1 milljarður kr. til rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Framlag til viðhalds á vegakerfinu stóreykst og við stoppum uppsöfnun viðhaldsskuldar. Lagt er til að framlag til viðhalds vega verði alls 97,5 milljarðar á árunum 2026–2030. Frá árinu 2027 verður árlegt framlag til viðhalds 20 milljarðar. Til samanburðar hafa árleg framlög verið á bilinu 10–13 milljarðar kr. síðastliðin ár. Við erum að fara hér upp í 20 milljarða kr. Með þessu náum við því viðmiði sem Vegagerðin telur nauðsynlegt til að stöðva frekari uppsöfnun innviðaskuldar.

Lagt er til að framlög til þjónustu verði aukin til muna og verði alls 49,5 milljarðar árin 2026–2030. Vetrarþjónusta hefur verið verulega vanfjármögnuð undanfarin ár en nú mun hún verða fjármögnuð miðað við umfang þjónustu síðastliðinna ára.

Við vinnum áfram að metnaðarfullu markmiði um að öryggi í samgöngum á Íslandi verði sambærilegt eða betra en það sem best gerist hjá nágrannaþjóðunum. Með samgönguáætlun fylgja sérstakar öryggisáætlanir um flug, siglingar og umferð sem eru í umsjón Samgöngustofu.

Varðandi vegaframkvæmdir og nýframkvæmdir þá blásum við til sóknar í nýframkvæmdum um land allt. Meðal helstu vegaframkvæmda er aðskilnaður akstursstefna á stofnbrautum frá höfuðborgarsvæðinu, á Reykjanesbraut, á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi sem og á hringveginum milli Þelamerkur og Akureyrar. Einnig má nefna stórfellda uppbyggingu á Skógarstrandarvegi, Vestfjarðavegi, Bíldudalsvegi, Vatnsnesvegi og Síðuvegi, Norðausturvegi, Bárðardalsvegi vestra, Holtavegi vestra og á hringveginum um Suðurfirði, Lagarfljót, Lón og á Axarvegi. Einbreiðum brúm mun fækka og á hringveginum verður þeim útrýmt fyrir árið 2040. Við höldum áfram öflugu átaki í að fækka malarvegum. Á næstu 15 árum verður bundið slitlag lagt á 460 km af tengivegum og 145 km af stofnvegum. Samtals eru þetta 605 km af vegum sem í dag eru malarvegir.

Þá um stofnun innviðafélags um stórverkefni. Við munum koma stórframkvæmdum af stað og rjúfa áralanga kyrrstöðu í jarðgangagerð. Með það fyrir augum stofnum við innviðafélag sem tryggir fjármögnun og fyrirsjáanleika. Með sögulegu samkomulagi um stofnun félagsins rjúfum við kyrrstöðuna, komum framkvæmdum af stað og tryggjum fjármögnun til lengri tíma. Lagt er til að fyrstu verkefni félagsins verði ný brú yfir Ölfusá, Sundabraut og Fljótagöng. Tilkoma Sundabrautar mun valda straumhvörfum í umferð innan borgarinnar og milli hennar og Norður- og Vesturlands. Jarðgöng milli Siglufjarðar og Fljóta munu efla tengingu norðanverðs Tröllaskaga og Skagafjarðar og leysa af hólmi hættulegan veg um almenninga. Nánar er fjallað um innviðafélagið í greinargerð, en gert er ráð fyrir að frumvarp um stofnun þess verði lagt fram á þessu vorþingi.

Undanfarin fimm ár hefur ríkt algjör kyrrstaða í jarðgangagerð og engar nýjar framkvæmdir hafa hafist síðan Dýrafjarðargöng voru tekin í notkun árið 2020. Samhliða því að rjúfa kyrrstöðuna með því að hefjast handa við Fljótagöng munum við stórauka framlög til undirbúnings og rannsókna. Við ætlum að undirbúa fjóra jarðgangakosti samhliða á kjörtímabilinu. Markmiðið er einfalt: Að eiga úrval af tilbúnum verkefnum sem við getum boðið út strax og fjármagn leyfir í stað þess að bíða árum saman eftir hönnun. Í áætluninni er lögð til forgangsröðun á fjórum verkefnum. Auk þess eru 11 aðrir jarðgangakostir til nánari skoðunar. Við mat á forgangsröðun er horft til þátta eins og styttingar ferðatíma, öryggis og mikilvægis fyrir byggðir. Þörfin er brýn víða en við verðum að forgangsraða.

Forgangsröðun í jarðgangagerð krefst þess að horft sé til heildarhagsmuna þjóðarinnar og sérstakra aðstæðna á svæðum sem búa við hættulega náttúruvá. Gerð er tillaga um að Fljótagöng verði undirbúin og framkvæmd eins hratt og unnt er og fjármögnun þeirra verði tryggð í innviðafélagi. Þetta verkefni er í forgangi vegna sérstaklega hættulegrar náttúruvár, jarðsigs og ofanflóða. Auk þess leysa göngin af hólmi Strákagöng sem uppfylla ekki lengur nútímakröfur.

Í 2. og 3. sæti eru verkefni sem fara strax í undirbúning, Fjarðagöng og Súðavíkurgöng. Fjarðagöng eru tvenn göng milli Seyðisfjarðar, Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Þau eru valin fram yfir Fjarðarheiðargöng á faglegum forsendum og á grundvelli heildstæðs mats. Ákvörðun um breytta forgangsröðun byggir á margra ára vinnu, viðamiklu samráði og greiningum. Greiningar sýna að Fjarðagöng skila meiri samfélagslegum ábata og jákvæðri arðsemi. Þau skapa hringtengingu um Austfirði og tryggja tengingu milli byggðakjarna 350 daga á ári. Þetta rýfur vetrareinangrun Seyðisfjarðar og stórbætir öryggi íbúa, ekki síst með því að stytta ferðatíma að héraðssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Opnun Mjóafjarðar skapar einnig skilyrði fyrir aukna verðmætasköpun, t.d. í fiskeldi. Súðavíkurgöng tengja Súðavík og Ísafjörð. Þau leysa af hólmi vegkafla þar sem hætta á grjóthruni og snjóflóðum er mikil og ógnar öryggi vegfarenda.

Í 4. sæti eru göng um Mikladal og Hálfdán sem tengja saman Patreksfjörð, Tálknafjörð og Bíldudal. Þetta styrkir atvinnu- og þjónustusvæði á sunnanverðum Vestfjörðum og bætir öryggi. Þar á eftir koma 11 aðrir mikilvægir jarðgangakostir, þar á meðal Fjarðarheiðargöng, Hvalfjarðargöng II og göng milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Við erum ekki búin að festa röðina á þessum verkefnum. Við höfum því sveigjanleika til að velja hvaða kostur verður næstur í röðinni þegar þar að kemur. Við verðum að halda áfram rannsóknum og undirbúningi og þannig tryggjum við að þegar svigrúm skapast eða þegar innviðafélagið hefur bolmagn liggi fyrir fullkannaðir valkostir tilbúnir í útboð.

Þá um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ráðist verður í mikilvægar úrbætur í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Miklabraut fer í jarðgöng og Sæbraut í stokk. Við bætum flæðið á Reykjanesbraut milli Setbergs og Álftanesvegar og setjum Hafnarfjarðarveg í stokk í Garðabæ. Verkefni samgöngusáttmálans og Sundabrautar skila ríflega 1.330 milljörðum kr. í samfélagslegan ábata, 1.330 milljörðum. Það er því um gríðarlega mikilvægt verkefni að ræða. Hver króna sem við setjum í þessi verkefni skilar sér aftur nær fjórfalt. Áfram verður unnið að uppbyggingu hjóla- og göngustíga um land allt en á höfuðborgarsvæðinu eru framlög til þeirra hluti samgöngusáttmálans. Ríkið kemur nú af auknum þunga að rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun nýs félags í eigu sveitarfélaganna og ríkisins á ríkið beina aðkomu að rekstrinum.

Ísland á meira undir greiðum flugsamgöngum en flestar aðrar þjóðir og því er það forgangsmál að Keflavíkurflugvöllur verði áfram öflugur alþjóða- og tengiflugvöllur sem stenst samanburð við bestu flugvelli erlendis. Við vinnum áfram að því að tryggja stöðu Íslands sem samkeppnishæfrar miðstöðvar tengiflugs. Á landsbyggðinni er flugvöllurinn á Egilsstöðum settur í forgang. Strax á næsta ári hefjast framkvæmdir við nýja akbraut og ný aðflugsljós á flugvellinum. Á Reykjavíkurflugvelli er áætlað að byggja nýja flugstöð sem samvinnuverkefni. Árið 2026 verður unnin þarfagreining og hönnunarundirbúningur. Einnig lýkur uppsetningu fjarstýrðs flugturns á flugvellinum á þessu ári.

Í siglinga- og hafnamálum er gerð tillaga að víðtækum framkvæmdum í höfnum árin 2026–2030. Áætlaður heildarkostnaður verkefna í höfnum innan grunnnets er tæplega 11,4 milljarðar kr. og utan grunnnets um 1,8 milljarðar kr. Í þessum tölum eru ekki taldar framkvæmdir hjá Faxaflóahöfnum sf., Fjarðabyggðarhöfnum, Hafnarfjarðarhöfn og Kópavogshöfn, enda fjármagna þær sínar framkvæmdir með eigin aflafé. Mikil fjárfestingarþörf er í höfnum landsins. Til þess að fjármagn Hafnabótasjóðs nýtist sem best er lagt til að hlutdeild framlags Hafnabótasjóðs í framkvæmdakostnaði hjá þeim höfnum sem best standa fjárhagslega lækki í skrefum frá 2027 og 2028. Það eykur getu sjóðsins til að styrkja verkefni um land allt og styðja við minni hafnir sem þurfa nauðsynlega á uppbyggingu að halda. Helstu hafnarframkvæmdir á fyrsta tímabili eru m.a. í Vestmannaeyjum, Landeyjahöfn, Þorlákshöfn, Ólafsvík, Reykhólum, Þingeyri, Sauðárkróki, Húsavík, Vopnafirði, Seyðisfirði og viðhaldsdýpkun í Hornafirði.

Að lokum vil ég víkja að nokkrum mikilvægum áherslumálum sem snúa að framtíðaröryggi og samkeppnishæfni. Fyrst ber að nefna viðnámsþol og tvöfalda nýtingu innviða. Áfallaþol innviða og samgöngukerfa verður sífellt mikilvægara viðfangsefni, hvort sem er vegna breytinga í öryggismálum, fjölþáttaógna eða náttúruvár. Brýnt er að kortleggja mikilvæga innviði, regluverk og verklag fyrir neyðarástand. Einnig er mikilvægt að huga að tvöfaldri nýtingu innviða, þ.e. að innviðir til borgaralegra nota nýtist einnig í neyðarástandi.

Annað brýnt öryggismál snýr að farneti. Hluti þjóðvegakerfisins er án farnets og engin markaðsleg áform eru um úrbætur. Sambandsleysi á tengivegum skapar óöryggi og það ógnar velferð vegfarenda ef ekki næst samband við 112. (Forseti hringir.) Því þarf að tryggja fyrirsjáanleika úrbóta og jafnræði landsmanna í aðgengi að farneti óháð vegtegund. Við þurfum einnig að huga að samkeppnishæfni landsins í alþjóðaflugi og siglingum. Í tengslum við vöruflutninga vil ég benda á að stór tækifæri liggja í auknu vægi strandsiglinga innan lands en þungaflutningar valda miklu niðurbroti á vegum. Er þar starfshópur að störfum.

Ég hef nú farið yfir helstu atriði í tillögu til samgönguáætlunar fyrir þingið fyrir árin 2026–2040.

Virðulegur forseti. Ég legg til að þetta þingmál gangi til hv. umhverfis- og samgöngunefndar að lokinni umræðu hér í þinginu.