samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég óska hæstv. ráðherra til hamingju með fyrstu samgönguáætlun sína. Það er margt jákvætt hér á ferð en mig langar í ljósi stöðu efnahagsmála að spyrja hæstv. ráðherra út í raunsæi áætlunarinnar. Ég spyr vegna þess að staða efnahagsmála er ekki sú sama í dag og hún var í haust. Við erum að sjá enn meiri óvissu alþjóðlega. Við erum að sjá að verðbólga er á uppleið sem hefur áhrif á kostnað varðandi það að fjármagna framkvæmdir. Við vitum að það verður mjög krefjandi að ná fram hallalausum fjárlögum á næsta ári. Því langar mig að heyra hvort hæstv. ráðherra telji að það þurfi að gera einhverjar breytingar til að bregðast við. Í framhaldi vil ég óska eftir nánari upplýsingum um hvernig innviðafélagið, sem ég tel vera mjög mikilvægt og ég held að allir hér séu sammála um það, verði fjármagnað. (Forseti hringir.) Þótt hér sé verið að stofna félag er ábyrgð ríkisins mikil og gagnsæi skiptir hér máli. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Forseti ítrekar að þegar fjórir þingmenn veita andsvör þá er ræðutími ein mínúta í hverri umferð.)