157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:00]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi efnahagsmálin þá er Seðlabanki Íslands farinn að lækka vexti og ég tel að við þurfum ekki að vera óeðlilega svartsýn hvað varðar efnahagsmálin. Varðandi samgönguáætlun er hún t.d. á verðbótum fyrstu þrjú árin. Við erum að nota veiðigjaldspeningana í viðhald. Þeir fara fyrst og fremst í viðhald og þjónustu. Við erum að hækka þar framlög úr 10–12 milljörðum kr. upp í 20 milljarða. Við getum ekki notað sömu krónuna tvisvar, þ.e. líka í nýframkvæmdir. Við notum þetta fyrst og fremst í viðhald. Svo er líka spurningin: Hver er munurinn á viðhaldi og nýframkvæmdum þegar við erum að gera nánast nýjan veg? Við erum með innviðafélagið sem kemur sérstaklega að jarðgangaframkvæmdum, Sundabraut og Ölfusárbrú. Það er tekið á því þar. Varðandi Vestmannaeyjar erum við með Landeyjahöfn og við höldum henni opinni. Vissulega, ef við getum farið að tala um jarðgöng til Vestmannaeyja, þá er það framkvæmd sem kostar 150–200 milljarða kr. Þar er komið þróunarfélag sem ætlar að fara í könnun á borholu sem þetta varðar. Þau göng eru þó ekki á dagskrá í samgönguáætlun, (Forseti hringir.) ef ég á að segja alveg eins og er.