157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:01]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir framsögu hans um samgönguáætlun og óska honum jafnframt til hamingju með hana. Það er gott að þessi áætlun hefur litið dagsins ljós. Hennar hefur verið beðið lengi. Þetta er náttúrlega stórmál sem krefst yfirlegu margra hlutaðeigandi aðila. Þess vegna verð ég eiginlega að lýsa furðu minni að áætlunin var ekki sett í samráðsgátt áður en hún var lögð fram í þinginu. Þannig tel ég að við hefðum getað vandað betur til verka. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvers vegna var það ekki gert? Nógu lengi höfum við nú beðið eftir áætluninni. Ég tel að vel hefði verið hægt að gefa tíma til þess.

Næsta spurning: Vegna þess að áætlunin var ekki lögð fram í samráðsgátt, telur hæstv. innviðaráðherra þá ekki eðlilegt að umsagnarfrestur um áætlunina verði lengri, t.d. fjórar vikur, til að gefa hlutaðeigandi aðilum nægan tíma til að senda inn umsagnir? Þannig getum við unnið málið, tel ég, miklu betur.