samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Hvers vegna var samgönguáætlun ekki sett í samráð? Ákvörðun þessi var tekin að vel ígrunduðu máli með skrifstofu samgöngumála hjá mér. Að mörgu leyti byggir þessi tillaga núna á tillögum síðustu samgönguáætlunar 2023. Eðli málsins samkvæmt þá erum við að vinna hérna eftir fjármálaáætlun. Hún var ekki samþykkt fyrir en 14. júlí síðastliðinn og það vannst einfaldlega ekki tími til. Af hverju var fjármálaáætlun ekki samþykkt fyrr en 14. júlí? Það var út af málþófi stjórnarandstöðunnar þannig að við höfðum ekki tíma til að fara í samráð og leggja hana svo fram núna. Við höfðum hins vegar mikið ítarlegt samráð á samráðsfundum í öllum landshlutum. Þar var hlustað á athugasemdir íbúa og sveitarstjórnarfólks um áherslur í samgöngumálum. Þessir fundir tókust mjög vel og við erum með atriði sem við tökum með okkur frá fundunum. Það tel ég að hafi verið nægilegt samráð. (Forseti hringir.) Ég get ekki séð að það sé ástæða til að lengja umsagnartímann en ég læt það algerlega í hendur umhverfis- og samgöngunefndar.