samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með áætlunina. Hér er mál inni í áætluninni sem snýr að varaflugvallargjaldi. Það er mál sem sá sem hér stendur hefur komið að í að verða áratug frá upphafi máls og fyrir tveimur árum, eða reyndar í júní 2023, var samþykkt hér hvernig ætti að fjármagna þrjá helstu varaflugvelli landsins fyrir utan Keflavík. Ég get ekki séð betur og vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hér sé orðin sú breyting að það eigi að fara að nota varaflugvallargjaldið líka í rekstur annarra flugvalla á Íslandi fyrir utan innanlandsflugvallakerfið, fyrir utan Reykjavík, Egilsstaði og Akureyri. Það kerfi var hugsað fyrir uppbyggingu þeirra sem varaflugvalla og hinir vellirnir áttu að fá fjármagn í gegnum þjónustusamning við ríkið sem hefur numið um 350–500 milljónum á ári. Nú sýnist mér að varaflugvallargjald eigi að taka yfir það og það sé búið að minnka fjármögnun til innanlandsflugvallakerfisins með því að taka fjármagnið sem átti að koma í framkvæmdir í gegnum þjónustusamninginn. (Forseti hringir.) Ég spyr, frú forseti, hæstv. ráðherra að því hvort þetta sé rétt skilið hjá þingmanninum.