samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við erum að fara í stórframkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli og varaflugvallargjaldið nær til Egilsstaðaflugvallar, Akureyrarflugvallar og Reykjavíkurflugvallar. Ég tel að það sé vissulega að nýtast mjög vel til að fjármagna nýframkvæmdir sem auka öryggi á stærstu flugvöllum landsins. Það eru engar markaðar tekjur og nánast engin önnur framlög til framkvæmda hvað lýtur að þessu. Það sem er búið að gerast á flugvöllum landsins er vissulega samdráttur varðandi framlög til flugvalla vegna þess að Covid-peningurinn er einfaldlega búinn að minnka. Það er búið að draga úr því hvað það varðar. Ég get ekki sagt að við séum ekki að fara að réttum lögum hvað varðar nýtingu á varaflugvallargjaldinu.