157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er ekki málið sem var spurt um. Það er spurt um þjónustusamning sem er til staðar á milli ríkisins og Isavia, sem Isavia innanlandsflugvellir ehf. sinnir fyrir Isavia. Í þeim samningi, sem er um 3 milljarðar, hafa verið framkvæmdarpeningar, stofnfé, upp á 350–500 milljónir. Það er spurningin. Eru þeir peningar enn þá til staðar eða er búið að færa til það sem átti að fara í alþjóðaflugvallakerfið í hina þrjá varaflugvellina? Það eru fyrst og fremst Reykjavík, Akureyri og Egilsstaði sem eru hluti af innanlandsflugvallakerfinu en hafa þetta hlutverk. Voru peningar teknir út úr þjónustusamningnum og færðir úr þessu hlutverki, fjármögnun varaflugvallakerfisins, og yfir í hitt kerfið? Það er spurningin. Þetta er ekki flókin spurning og hér óskar hv. þingmaður eftir að fá svar við spurningunni.