samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Bara ögn varðandi Hafnabótasjóð þá er heildarkostnaður framkvæmdanna frá 2026–2030 13,6 milljarðar á tímabilinu. Það sem hins vegar hefur gerst er að Covid-átakið, framlag ríkisins, er að detta út núna. Ákveðnar hafnir eins og Fjarðabyggðarhafnir, Faxaflóahafnir og Kópavogshöfn, sem eru algerlega sjálfstæðar, fá ekki krónu frá ríkinu. Svo eru aðrar hafnir sem eru að verða fjárhagslega sjálfstæðar og standa undir sér eins og Þorlákshöfn, Ísafjörður og fleiri staðir sem ættu raunverulega ekki að þurfa á framlagi ríkisins að halda. Þar er ríkishlutfallið lækkað. Það mun lækka til hafnarframkvæmda og nýframkvæmda úr 60% í 40% frá árinu 2028. Þetta er m.a. vegna þess að Covid-framlögin hafa dottið út og einnig til að tryggja betri nýtingu fjármuna til þeirra hafna sem virkilega þurfa á þeim að halda. Það er ástæðan fyrir þessu.
Varðandi það að við séum að leggja fram samgönguáætlun til 15 ára þá veit ég ekki betur en að það sé lögum samkvæmt. Það skiptir hins vegar gríðarmiklu máli hér að fyrstu fimm ár (Forseti hringir.) aðgerðaáætlunarinnar eru fullfjármögnuð. Af hverju? Hún er í samræmi við fjármálaáætlun til sama tíma (Forseti hringir.) og svo bætum við innviðafélaginu við, sem lýtur að nýframkvæmdum.