157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:32]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að hæstv. ráðherra hafi ekkert verið að hlusta á mig. Ég var einmitt að segja að það væri ekki hægt að kvarta yfir, fyrir Norðvesturkjördæmi, áætlunum varðandi jarðgangagerð. Hins vegar sagði ég líka að ég skildi fullkomlega reiði Austfirðinga. Hlustaði hæstv. ráðherra ekki á það sem ég var að segja? Hann talaði hérna um einbreiðar brýr. Þá langar mig að spyrja hann aðeins út í það, fyrst hann er hér í andsvörum við mig, sem segir nefnilega í áætluninni, með leyfi forseta:

„Fjárveiting er ætluð til að breikka eða skipta út einbreiðum brúm. Á þjóðvegum eru 632 einbreiðar brýr og þar af eru 29 einbreiðar brýr á Hringveginum í árslok 2024. Miðað er við að engin brú á Hringveginum verði einbreið í lok þessa 15 ára tímabils.“

Ég skil ekkert í þessu vegna þess að ég veit ekki hvar fjárveitingarnar eru fyrir þessu. Ef ráðherra kemur aftur í andsvör við mig þá langar mig að spyrja hann hvar ég finn yfirlit yfir einbreiðu brýrnar. Er til tímasett áætlun og listi yfir breikkun eða útskiptingu þessara brúa?