samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að það þurfi að gera betur fyrir landsbyggðina. Það er það sem við erum að gera akkúrat hér í samgönguáætlun með stórauknu framlagi til viðhalds og strax nú í ár, eins og ég sagði áðan, er hækkunin um 4,5 milljarðar, fer í 17,5 milljarða. Á Austurlandi eru sennilega flest verkefni í samgönguáætlun. Fimm þeirra eru á áætlun eða á undan áætlun miðað við tillöguna sem kom fram árið 2023. Við ætlum að hefja framkvæmdir á Axarvegi, vonandi getum við flýtt þeim enn frekar. Þótt það sé sérstaklega tilgreint í lögum um samvinnuverkefni er ríkið að fara að fjármagna það verkefni að fullu. Jökuldalsvegur er gríðarlega mikilvæg framkvæmd út af Stuðlagili, hringtorg á Egilsstöðum, 800 millj. kr. strax á tímabilinu 2029–2030. Flugvellir, þar er fjármagn á Austurlandi rúmlega 4,1 milljarður af tæplega 6,8 milljarða framlagi. Egilsstaðaflugvöllur, þar fer nánast allt svigrúmið til nýframkvæmda, sem hér var spurt um af hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni. Það er gríðarlega mikilvægt. Ég get ekki séð annað en að við séum algerlega að fara rétt að varðandi Austfirði og Austurland, svo það liggi algjörlega fyrir. Við erum með faglegt, heildrænt mat hvað þetta varðar.
Varðandi einbreiðar brýr þá verður þeim að mestu leyti fækkað í einstaka verkefnum í vegáætlun samgönguáætlunar. Fyrst eru teknar brýrnar þar sem mesta umferðin er, þær eru teknar fyrst í forgangsröðuninni. Það eru 19 brýr á hringveginum af 51 brú sem á að taka á samkvæmt samgönguáætlun. Það er því ekki einungis um að ræða útrýmingu einbreiðra brúa fyrir það fjármagn sem sýnt er undir liðnum Breikkun brúa, svo það liggi fyrir. Þannig að við erum að vinna að þessu og svo er líka svokölluð svartblettagreining þar sem greindir eru hættulegir staðir í umferðinni úti á landi og þeir eru teknir fyrst. Dæmi um fjárveitingar í einstök verkefni eru hringvegur um Lón, hringvegur um Fagurhólsmýri og Morsá, hringvegur um Suðurfirði, (Forseti hringir.) brýr í Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Reyðarfirði, þekkt brú í botni Reyðarfjarðar yfir Sléttuá. (Forseti hringir.) Það koma rúmlega 20% af útflutningstekjum þjóðarinnar frá því sveitarfélagi, Fjarðabyggð, og það þarf að fara yfir á vaði í þungaflutningum.
(Forseti (BHar): Forseti minnir aftur á tímamörkin.)