samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar ræðu. Ég tek undir með hv. þingmanni: Að fá hér nokkrar mínútur til að ræða samgönguáætlun er náttúrlega engin leið til þess að komast yfir málið fyrir okkur þingmenn sem viljum tjá okkur um þetta mál. Það er einmitt út frá þeim punkti sem mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála mér um það, í ljósi þess að það var haldinn blaðamannafundur 3. desember, að mig minnir, þar sem fjármálaáætlun var kynnt fyrir þjóðinni, að samráðs hefði mátt leita um þessa samgönguáætlun? Þessi samgönguáætlun hefur ekki farið í neitt samráð og þá tel ég ekki með fundaherferð hæstv. ráðherra, sem hélt fjóra fundi í kringum landið. Ég tel það ekki vera samráð. Ég sat einn af þessum fundum. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er ekki hv. þingmaður sammála mér í því að það hefði hæglega verið hægt að setja samgönguáætlun í samráð 5. desember? Hún hefði getað verið í samráðsgátt alveg til 5. janúar. Nú erum við að verða komin í janúarlok. (Gripið fram í: Við ætlum að mæla fyrir henni líka.) Þá hefði hæstv. ráðherra þurft að leggja fram áætlun í október, nóvember en ekki í blálok þingsins. Því velti ég fyrir mér: Er ekki hv. þingmaður sammála því að það hefði hæglega verið hægt að setja þessa áætlun í samráð? Ráðherra hefði þá fengið fyrstu athugasemdir og í raun hefðum við sem sitjum í nefndinni — og nú sitjum við, ég og hv. þingmaður, saman í nefndinni — þá haft aðeins betri grunn núna til þess að ræða þetta mál heldur en að þetta sé sett í umsögn núna. Við verðum að gefa okkur góðan og drjúgan tíma til að setja málið í umsögn, sérstaklega af því að áætlunin fór ekki í samráð.