samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir gott andsvar. Ég kom einmitt inn á þetta í ræðu minni hérna áðan. Að sjálfsögðu hefði átt að setja samgönguáætlunina í samráðsgátt. Eins og hv. þingmaður segir er hún kynnt hérna með flugeldasýningu 5. desember á blaðamannafundi. Hún kemur ekki hingað inn í þing fyrir jól. Það hefði verið hægur leikur að setja áætlunina í samráðsgátt á þeim tímapunkti akkúrat til að auðvelda okkur bæði vinnuna í umhverfis- og samgöngunefnd, þar sem við hv. þingmaður sitjum bæði, og síðan held ég að það hefði orðið miklu betra fyrir umræður hér í þingsal. Ég skil því eiginlega ekki hvers vegna hún var ekki sett í samráðsgátt vegna þess að nægur var nú tíminn. Ég verð bara að nota tækifærið fyrst hæstv. ráðherra nefndi hérna umræður sem voru hér fram á sumar áður en þingi var slitið, og benda á að síðan hefur liðið hálft ár. Það hefði því verið nægur tími að setja þetta í samráð. Af þeim sökum er hið eðlilegasta mál að umsagnarfrestur samgönguáætlunar verði lengri en ella, ekki síst til þess að koma til móts við þá fjölmörgu sem munu senda inn umsagnir. Það er alveg klárt.