157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:43]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar svar. Mig langar kannski aðeins að halda bara áfram á þessum nótum og velta því fyrir mér og kalla eftir viðbrögðum hjá hv. þingmanni við því að við setjum niður tímalínuna núna. Við í umhverfis- og samgöngunefnd erum að fara að senda þetta mál út til umsagnar núna. Málið verður þá í umsagnarferli meira og minna allan febrúar. Þá erum við komin inn í mars og það koma páskar. Það verður tveggja vikna þinghlé út af sveitarstjórnarkosningum. Nefndin er líka með mjög stór mál inni sem snúa að rammanum og öðru í orkumálum. Fleira þarf líka að klára inni í nefndinni. Ég kallaði eftir viðbrögðum hjá hv. þingmanni við raunhæfi þess ef við ætlum að vinna þetta vel: Er þá einhver raunhæfur möguleiki á að leiða málið til lykta? Þetta er náttúrlega eins og allt annað. Þessi áætlun hefði náttúrlega átt að koma inn í byrjun október en ekki hér í lok janúar. Svo er ætlast til þess að þingið keyri þetta í gegn. Þessi áætlun verður ekki keyrð í gegn. Það mun koma alveg aragrúi af umsögnum. Það þarf að taka alla þessa umsagnaraðila fyrir nefndina og sú vinna er fram undan. Telur hv. þingmaður að það sé í rauninni raunhæfur möguleiki að við séum að fara að klára þessa samgönguáætlun núna í vor ef við ætlum að vanda til verka? Hún er að koma hér inn næstum því um mánaðamótin janúar/febrúar.