157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:56]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir sitt svar. Ég eiginlega bara stenst ekki mátið að gera eins og fleiri hérna og spyrja aðeins út í þessa fullfjármögnuðu samgönguáætlun. Ég veit að hæstv. ráðherra telur sig hafa útskýrt það nokkrum sinnum, sérstaklega með þessu innviðafélagi sem er byggt á einhverjum fjórum grunntekjustofnum þrátt fyrir að maður sjái ekki alveg hvernig það er, það er hvergi útskýrt. Það verður væntanlega útskýrt betur í lagafrumvarpinu þegar það kemur hver í raun og veru tekjustofn þessa innviðafélags verður og hvað mikið kemur út úr því. En það verður samt að segjast alveg eins og er að þetta innviðafélag — sem er bara hið besta mál og hefur borið hér á góma hjá nokkrum þingmönnum, er alveg fínasta hugmynd og það verður örugglega mjög áhugaverð umræða um hana þegar þar að kemur. En ég bara get ekki skilið hvernig hæstv. ráðherra leyfir sér að segja að þetta sé fullfjármögnuð samgönguáætlun þegar hluti af því er innviðafélag sem hæstv. ráðherra í raun og veru bara vonast til að gangi frá öllum þessum fjármunum. Það er ekkert í þessu plaggi sem við erum að lesa núna, í þessari ítarlegu samgönguáætlun, sem segir okkur að þetta sé fullfjármagnað. Ég held að þetta sé orðanotkun sem við verðum aðeins að fara að slaka á með í þessari umræðu.