157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:04]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta heldur áfram að verða óskýrara. Það er ekkert að veggjöldum en þau eru hins vegar ný gjöld og það er aukin skattheimta. Hvalfjarðargöngin: Frábært framtak, frábær framkvæmd líka, innheimt gjöld. Þetta voru samt aukin gjöld á fólkið í landinu þannig að við þurfum að ræða hversu mikil aukningin verður á gjöldum eða hvort þið ætlið að byrja að spara í útgjöldum ríkissjóðs til að hækka ekki alltaf skatta. Auðvitað er þetta bara aukin skattheimta af því að bifreiðaeigendur eru nú þegar að greiða gríðarlega mikla skatta þannig að þetta verður auðvitað viðbót. Gott og vel að hæstv. ráðherra kalli þetta ekki flýtigjöld en þetta eru klárlega veggjöld. Það er þá rétt að það verður borað fyrir einum göngum á þessu kjörtímabili, árið 2027, og það eru Fljótagöng. Er það rétt skilið? Hvernig skiptast þá hlutföllin í nýrri gjaldheimtu milli höfuðborgar og landsbyggðar?