samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Nú kemur það fram í máli hæstv. ráðherra að raunverulega sé þessi áætlun fyrst og fremst byggð á þeirri áætlun sem var lögð fram 2023. Það hefði kannski bara verið ágætt að fá það fram hver munurinn væri, hvort það væri einhver munur á þessu fyrir utan það sem kemur fram í máli hæstv. ráðherra, að forgangsröðun í jarðgangamálunum er með öðrum hætti hér en búið var að vinna að árum saman. Þar munar töluverðu og eins og við þekkjum er mikil óánægja fyrir austan vegna þessa. Er ekki búið að gengisfella töluvert samgönguáætlun með þessu verklagi sem hér er uppi, að þegar búið er að vinna að því árum saman að koma forgangsröðuninni varðandi jarðgöng í einhvern farveg skuli henni vera breytt með þessum hætti með jafn skömmum fyrirvara? Hér erum við að ræða 15 ára samgönguáætlun og aðgerðaáætlun samgöngumála til fimm ára. Nú virðist þetta hins vegar bara farið að snúast um kosningar. Hvað gerum við eftir næstu kosningar? Þá byrjar bara nýr leikur. Þann dans er verið að bjóða upp í hér með þessum hætti. Gott væri ef hæstv. ráðherra gæti svarað þeirri nálgun, hvort ekki sé hætta á því að þetta verklag, sem var tekið upp fyrir kannski 15–20 árum og snýr að samgönguáætlun, verði að engu þegar nýr ráðherra málaflokksins kemur inn og gjörbreytir með svona hætti þeirri forgangsröðun sem var til staðar fyrir. Það er hætt við því að hér sé búið að gengisfella verklagið og gefa hættulegt fordæmi varðandi það sem farið var af stað með í samgönguáætlun og það mikilvæga ferli sem var unnið eftir þar.